Landsvirkjun semur um 100 milljón dollara skuldabréf 17. september 2010 15:41
Landsvirkjun undirritaði í dag samning um útgáfu skuldabréfs að fjárhæð 100 milljónir Bandaríkjadollara eða tæpa 12 milljarða kr. Skuldabréfið er til fimm ára og ber fasta 6,5% vexti. Milligönguaðili er Deutsche Bank og eru kaupendur erlendir fjárfestar. Í tilkynningu segir að útgáfan markar tímamót hjá Landsvirkjun en hún er fyrsta skuldabréfaútgáfa fyrirtækisins sem seld er til erlendra fjárfesta eftir bankahrunið 2008. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segir útgáfuna mjög jákvæða fyrir fyrirtækið. „Þessi skuldabréfaútgáfa er mjög jákvæð fyrir Landsvirkjun en með henni tryggir fyrirtækið enn frekar lausafjárstöðu sína. Kjör skuldabréfsins eru einnig, í ljósi erfiðra markaðsaðstæðna, vel ásættanleg fyrir fyrirtækið. Útgáfan endurspeglar jafnframt mikið traust erlendra aðila á fyrirtækinu og gefur fyrirheit um að aðgengi að erlendu fjármagni sé að rýmkast", segir Hörður. Fyrirtækið hefur nú aðgang að um 450 milljónum Bandaríkjadollara til að mæta skuldbindingum næstu ára. Landsvirkjun hefur með þessu móti leyst verulegan hluta af endurfjármögnunarþörf fyrirtækisins fyrir árin 2012 og 2013. Að gefnu tilefni vill Landsvirkjun taka fram að þessi útgáfa skuldabréfa tengist ekki fyrirhuguðum framkvæmdum við Búðarhálsvirkjun. Landsvirkjun hefur samhliða þessari útgáfu unnið að fjármögnun þess verkefnis og er gert ráð fyrir að þau mál skýrist á næstu vikum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira