Spáir stýrivaxtalækkun upp á eitt prósentustig 17. september 2010 10:57
Greining Íslandsbanka reiknar með því að Peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að lækka stýrivexti bankans um 1,00 prósentustig á næsta vaxtaákvörðunardegi, þann 22. september næstkomandi. Við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana í 4,5% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 6,0%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að þar með haldi Seðlabankinn áfram vaxtalækkunarferli sínu en við síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar 18. ágúst síðastliðinn ákvað nefndin að lækka vexti um 1,00 prósentur. Líkt og í mörgum fyrri yfirlýsingum lýsti peningastefnunefndin því yfir eftir ákvörðun sína síðast að héldist gengi krónunnar stöðugt eða styrktist, og verðbólga hjaðnaði eins og spáð er, ættu forsendur fyrir áframhaldandi slökun peningalegs aðhalds að vera til staðar. Viðskiptavegið meðalgengi krónunnar hefur hækkað um ríflega prósent frá vaxtaákvörðun nefndarinnar 18. ágúst síðastliðinn. Hefur gengi krónunnar hækkað þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi á tímabilinu hafið kaup á gjaldeyri til að efla þann hluta gjaldeyrisforðans sem ekki er fenginn að láni. Gjaldeyrishöftin, afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd ásamt vaxtamun við helstu viðskiptalönd Íslands hefur haldið áfram að styrkja krónuna. Verðbólgan hefur einnig haldið áfram að hjaðna og í takti við það sem reiknað var með. Við síðustu vaxtaákvörðun stóð verðbólgan í 4,8% en er nú 4,5%. Þegar ekki er tekið tillit til áhrifa óbeinna skatta minnkaði verðbólgan á þessu tímabili úr 4,0% niður í 3,8%. Líkur eru á því að verðbólgan hjaðni áfram á næstunni og má reikna með því að hún verði komin niður í 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans fyrir mitt næsta ár og fyrr ef frá eru talin áhrif óbeinna skatta. Þá er verðbólguálag á skuldabréfamarkaði á bilinu 2,4% til 2,8% eftir tímalengdum og því nálægt verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Mest lesið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Neytendur Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Sjá meira