Seðlabankinn opinn fyrir gjaldmiðlaskiptasamningum 3. júní 2010 10:02
Seðlabankinn segir að ekki sé loku fyrir það skotið að hann komi tímabundið að lausn mála varðandi misvægi gjaldeyriseigna og -skulda. Yrði það að öllum líkindum gert með vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningum af einhverjum toga þar sem bankinn yrði milliliður á milli bankanna og innlendra aðila með öfugt ójafnvægi.Þetta kemur fram í ritinu Fjármálastöðugleiki sem Seðlabankinn gaf út í gærdag. Þar segir að slíkar lausnir myndu þó að öllum líkindum takmarkast við að aðstoða fjármálafyrirtæki við að draga úr gengisáhættu vegna eigna í erlendum gjaldmiðlum sem skila gjaldeyristekjum í rekstri.Segja má að eignir af þessum toga séu hluti af starfsemi bankanna til lengri tíma enda má gera ráð fyrir að ávallt muni hluti fyrirtækja og heimila hafa tekjur í erlendum gjaldmiðlum og því þurfa fjármögnun í samsvarandi gjaldmiðlum. Öðru máli gegnir um greiðsluflæði annarra eigna í erlendum gjaldmiðlum.Þegar kemur að greiðslu fær fjármálafyrirtæki afhentar íslenskar krónur fyrir eign í erlendum gjaldmiðli. Því lækkar staða erlendra eigna sem nemur nafnvirði greiðslunnar í erlendum gjaldmiðli. Einsýnt þykir að útlánaáhætta þesskonar eigna er að ákveðnu leyti beintengd gengi krónunnar en ekki greiðslugetu viðkomandi skuldara eins og hún er áætluð þegar lánið er veitt. Seðlabankinn mun því leggja hart að fjármálafyrirtækjum að vinna með heimilum og fyrirtækjum að endurskipulagningu skulda í erlendum gjaldmiðlum.Fjármálafyrirtæki munu væntanlega hraða því ferli eins og frekast er unnt. Reglur Seðlabankans munu taka mið af þessari stöðu og kappkosta líkt og áður segir að koma fjármálakerfinu í jafnvægi á nýjan leik hvað varðar misvægi gjaldeyriseigna og -skulda.Reglur um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja geta í mörgum tilfellum gegnt veigamiklu varúðarhlutverki í litlum opnum hagkerfum. Stöðutökur með eða á móti smáum gjaldmiðli eins og íslensku krónunni geta verið uppspretta mikilla gengissveiflna og mögulega ógnað fjármálastöðugleika ef ekki er haft nægilegt eftirlit með misvægi gjaldeyriseigna og -skulda.Reglur Seðlabankans um gjaldeyrisjöfnuð fjármálafyrirtækja voru síðast endurskoðaðar haustið 2009. Vegna aðstæðna sem upp komu eftir fall viðskiptabankanna reyndist nauðsynlegt að endurskoða reglurnar enda var fjármálafyrirtækjum nær ómögulegt að leiðrétta gjaldeyrismisvægi sem myndast hafði á efnahagsreikningum eftir fjármálaáfallið. Var m.a. af þeim sökum bætt við undanþáguheimild þar sem fá fjármálafyrirtæki gátu uppfyllt reglurnar.Staða íslenskra fjármálafyrirtækja er nokkuð einsleit að því er varðar misvægi gjaldeyriseigna og -skulda. Vandinn er djúpstæður og þörf er á endurskoðun reglnanna. Í ljósi gjörbreyttra aðstæðna sem ekki sér fyrir endann á, taldi Seðlabankinn mikilvægt að laga reglurnar að hluta til að þeim vanda sem lánastofnanir glíma nú við.Það er eigi að síður mikilvægt að reglusetning af þessum toga rati ekki út af sporinu með þeim afleiðingum að Seðlabankinn missi sjónar á langtímamarkmiðum reglna um þjóðhagsvarúð. Reglurnar munu því miða að því að koma fjármálakerfinu í jafnvægi á nýjan leik hvað varðar misvægi eigna og skulda í erlendum gjaldmiðlum. Í því felst meðal annars að Seðlabankinn mun kalla eftir langtum ítarlegri upplýsingum um skiptingu gjaldeyriseigna og -skulda en gert hefur verið hingað til, að því er segir í ritinu Fjármálastöðugleiki.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira