Betware skilaði 181 milljóna hagnaði í fyrra 26. apríl 2010 15:53
Árið 2009 var hagfellt íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Betware á Íslandi hf., sem er með höfuðstöðvar í Kópavogi og skrifstofur líka í Danmörku, Kanada, á Spáni og í Póllandi. Fram kom á aðalfundi félagsins að hagnaður þess hefði numið 181 milljón íslenskra króna, eftir skatta.Í tilkynningu segir að tekjur félagsins voru um 1.230 milljónir króna og jukust um meira en 50% frá fyrra ári. Starfsmenn Betware eru nú um 100 talsins, þar af um 60 hérlendis. Þeim fjölgaði um 18 árið 2009, aðallega hér á landi þar sem meginþróunarvinna fyrirtæksins á sér stað.Betware er frumkvöðull í þróun og framleiðslu á hugbúnaði og netlausnum fyrir innlend og erlend ríkislottó og getraunir og á rætur í fyrirtækinu Margmiðlun, sem þróaði árið 1996 netlausn í samstarfi við Íslenskar getraunir. Sú lausn var sú fyrsta sem gerði það mögulegt að reka getraunir á Netinu og vakti mikla athygli forsvarsmanna fyrirtækja í slíkum rekstri víða um heim.Betware hefur hingað til eingöngu starfað með ríkisreknum lottó- og getraunafyrirtækjum sem láta ágóða renna til samfélagslegra verkefna.Helstu viðskiptavinir Betware eru Íslenskar getraunir, Íslensk getspá, Danske Spil (danska ríkislóttóið), British Columbia Lottery Corporation (lottó í Bresku Kólombíu í Kanada) og Sistemas Tecnicos de Loterias del Estado (spænska ríkislottóið).Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Betware, segir að félagið afli 98% tekna sinna erlendis.„Starfsemin er gjaldeyrisskapandi og við greiðum að sjálfsögðu skatta til íslenska ríkisins. Mjög góð afkoma Betware hefur því umtalsverða efnahagslega þýðingu fyrir íslenskt þjóðarbú og samfélagslegt gildi líka í ljósi þess að við rekum blómlegt fyrirtæki og sköpum örugg og góð störf hérlendis á erfiðleikatímum í efnahagslífinu. Við erum á réttri leið. Félagið er skuldlaust og hefur fjárhagslega getu til að takast á við spennandi tækifæri framundan og halda áfram öflugu þróunarstarfi. Þannig hefjum við bráðlega samstarf við öflug fyrirtæki á sínu sviði, sem skapar okkur enn betri stöðu á árinu 2010," segir Stefán í tilkynningunni.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Sjá meira