Viðskipti innlent

Sala skuldabréf í útboðum minnkaði um 4 milljarða

Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í október 2010 nam 12,4 milljörðum kr. á söluverði samanborið við 16,5 milljarða kr. mánuðinn áður.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 5 milljörðum kr. en þar af voru 4,3 milljarðar kr. verðtryggð ríkisbréf.

Útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa námu 7,4 milljörðum kr. allt ríkisbréf.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×