Kaupþingsrannsókn Breta nær til Lúx 25. maí 2010 06:00
Rannsókn Serious Fraud Office, efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, á starfsemi Kaupþings í Bretlandi hefur nú teygt anga sína til Lúxemborgar. Fulltrúar embættisins hittu sérstakan saksóknara í Amsterdam í síðustu viku. Þar voru einnig fulltrúar belgískra rannsakenda sem og heimamanna og efnahagsbrotadeildar Europol. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að samstarf verði milli þessa aðila um rannsókn á bankahruninu. Jafnvel komi til greina að Bretar fái aðgang að þeim yfirheyrslum sem fram hafa farið í Kaupþingsmálinu. „Það er alveg ljóst að þessi lönd verða að hafa með sér samstarf um þetta, þetta hlykkjar sér hérna á milli. Það eru nú þegar búin að eiga sér stað ákveðin skipti á upplýsingum á báða bóga, þannig að við erum búnir að lýsa því við þá að við munum vera mjög fúsir til að eiga við þá gott samstarf." Þegar hefur átt sér stað samstarf milli embættanna, en þegar farið var inn í Existu var það gert samtímis í löndunum tveimur. Ólafur Þór segir að hlutverk Europol muni verða meira í rannsókninni á næstunni. Þar hugi menn að því að leggja meiri áherslu á rannsókn efnahagsbrota. Það sé því ekki ólíklegt að hrun íslensku bankanna komi inn á borð stofnunarinnar. Rannsókn stendur enn yfir hjá embætti sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings og þeir Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur Helgason, Magnús Guðmundsson og Steingrímur P. Kárason eru enn í farbanni. Ólafur segir ekki hægt að spá fyrir um hvenær rannsókninni lýkur. Hún sé það stór um sig. Staða Sigurðar Einarssonar hefur ekki breyst og Ólafur Þór vill enn fá hann í yfirheyrslu. „Við útilokum ekkert í þeim efnum," segir Ólafur spurður hvort til greina komi að yfirheyra Sigurð í Bretlandi.- kóp
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Sjá meira