Evrópska fyrirtækjavikan hefst á morgun 25. maí 2010 12:21
Evrópska fyrirtækjavikan hefst á Grand hóteli á morgun, 26. maí. Þar fá frumkvöðlar, fulltrúar fyrirtækja í nýsköpun og einstaklingar með viðskiptahugmyndir tækifæri til að fá heildstætt yfirlit yfir stuðning við nýsköpun á Íslandi. Í tilkynningu segir að tíu frumkvöðlar og fulltrúar fyrirtækja í nýsköpun miðla af reynslu sinni og á annan tug aðila úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi kynna þjónustu sína á fundinum. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís, Samtök iðnaðarins og Útflutningsráð ásamt Hátækni- og sprotavettvangi standa að viðburðinum í tilefni af evrópsku fyrirtækjavikunni SME Week 2010 sem haldin er hátíðleg um alla Evrópu dagana 25. maí - 1. júní. Markmið kynningarinnar er að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðningskerfi nýsköpunar fyrir fyrirtæki og frumkvöðla á Íslandi. Á meðal fyrirtækjanna sem miðla af reynslu sinni af styrkjamöguleikum, frumkvöðlasetrum og annarri þjónustu fyrir fyrirtæki í nýsköpun eru Gogogic, Nox Medical, Bláa lónið, Knitting Iceland, Clara, Marorka, Remake Electric og Transmit auk Róshildar Jónsdóttur vöruhönnuðar. Á fundinum verða tvær málstofur, annars vegar fyrir einstaklinga með nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum og hins vegar fyrir þroskaðri sprotafyrirtæki og fyrirtæki í nýsköpun, og ættu því aðilar á ýmsum stigum í nýsköpunarferlinu að fá upplýsingar við sitt hæfi. Þeir aðilar sem kynna þjónustu sína í básum eru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Útflutningsráð, Rannís, Samtök iðnaðarins, Innovit, Klak - nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Frumtak, Einkaleyfastofa, Kauphöllin, Hönnunarmiðstöð, Byggðastofnun, Vinnumálastofnun og Matís. Þetta er í annað sinn sem evrópska fyrirtækjavikan er haldin en yfir 300 manns mættu á sambærilegan viðburð í Reykjavík fyrir ári síðan.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira