Sér fyrir endann á samdrættinum 5. maí 2010 19:12
Það sér fyrir endann á samdrættinum hér á landi segir aðalhagfræðingur Seðlabankans, það sé þó lengra í að kreppunni ljúki. Samdráttarskeiðið sé það dýpsta og með því lengsta sem vestrænt ríki hafi upplifað. Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í morgun um 0,5 prósentustig og eru þeir nú 8,5 prósent. Vextirnir fóru hæst upp í 18% í október 2008 eftir hrunið. Þrátt að þeir hafi nú lækkað um tæp 10% eru þeir með því hæsta sem þekkist í vestrænum heimi. „Það má alltaf deila um hvað á að lækka vextina um mikið í hverju skrefi en þetta var það sem var ákveðið nú. Að óbreyttu sýnist mér það séu mjög góðar horfur að við getum stigið nokkuð myndarleg skref kannski í júní," segir Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, aðspurður hvort ekki séu forsendur fyrir frekari lækkun þar sem gengi krónunnar hefur verið nokkuð stöðug að undanförnu og dregið hefur úr verðbólgu. Þá voru Peningamál Seðlabankans birt í dag. Þar er gert ráð fyrir að efnahagsbata landsins seinki til þriðja ársfjórðungs þessa árs. Samkvæmt því mun efnahagssamdrátturinn hér á landi vara í tíu ársfjórðunga eða tvö og hálft ár. „Þrátt fyrir að við séum bjartsýnni um efnahagshorfur en við vorum í janúar þá breytir það því ekki að þetta er dýpsta og lengsta samdráttarskeiði meðal annarra sambærilegra þróaðra ríkja," segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. „Á þriðja ársfjórðungi teljum við að landsframleiðsla taki að vaxa á ný milli ársfjórðunga. Þá lýkur þessu samdráttarskeiði en það þýðir ekki að við séum að segja að kreppunni sé lokið. Það er miklu lengra í það en samdráttarskeiðinu er að ljúka," segir Þórarinn.
Mest lesið „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent „Ég hef aldrei spilað golf“ Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós „Ég hef aldrei spilað golf“ Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Sjá meira