SÍ: Verðbólga þrálát og atvinnuleysi nær óbreytt 5. maí 2010 13:03 Skýring þrálátari verðbólgu er m.a. meiri hækkun olíu- og hrávöruverðs á alþjóðlegum mörkuðum, minni lækkun húsnæðisverð og minni framleiðsluslaki en spáð var.
Seðlabankinn (SÍ) gerir nú ráð fyrir nokkuð meiri verðbólgu í ár en áður var spáð og telur nú að verðbólgan verði að meðaltali 6,1% í ár í stað 5,6% áður. Þá gerir ný þjóðhagsspá bankans ráð fyrir að atvinnuleysi verði nær óbreytt út árið.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýja þjóðhagsspá SÍ. Í spánni segir að ástæða þess að verðbólgan verði meiri á þessu ári er m.a. að verðbólgan hefur reynst meiri það sem liðið er af ári en bankinn hafði reiknað með í janúar og jafnframt er útlit fyrir að verðbólga verði nokkru meiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs.„Skýring þrálátari verðbólgu er m.a. meiri hækkun olíu- og hrávöruverðs á alþjóðlegum mörkuðum, minni lækkun húsnæðisverð og minni framleiðsluslaki en spáð var. Þó verður hækkun mældrar verðbólgu á næstu tveimur árum vegna hækkunar neysluskatta minni en áður var gert ráð fyrir," segir í Morgunkorninu.„Á heildina litið er áfram reiknað með að mikill slaki í þjóðarbúinu og nokkuð stöðugt gengi krónunnar tryggi að verðbólga muni hjaðna í átt að verðbólgumarkmiðinu þegar líður á spátímann. Á næsta ári er gert ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3% en verði svo við verðbólgumarkmið SÍ að meðaltali árið 2012. Er þetta minni verðbólga á næsta ári en seðlabankamenn reiknuðu með í janúarspá sinni, þ.e. 4,3% á móti 3,0%, en spárnar eru svipaðar fyrir árið 2012.Spá SÍ um atvinnuleysi er nær óbreytt frá fyrri spá og gerir bankinn því áfram ráð fyrir að atvinnuleysi muni haldast mikið út þetta ár og byrji ekki að minnka fyrr en snemma á næsta ári. Þannig hljóðar spá SÍ upp á 9,5% atvinnuleysi í ár en minnki svo niður í 8,9% á næsta ári og svo 6,7% árið 2012. Er því ljóst að líkt og aðrir aðilar reiknar SÍ með að aðlögun á vinnumarkaðinn eftir áfallið um haustið 2008 komi til með að taka nokkur ár til viðbótar."
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira