Vill rukka fyrir ríkisábyrgð 5. maí 2010 06:00 Lilja Mósesdóttir formaður viðskiptanefndar Alþingis segir ríkið hafa átt að leggja gjald á innstæður í bönkunum fyrir ári. Mynd/GVA
Ríkið á að krefjast gjalds vegna ríkisábyrgðar á innstæður í bönkunum. Þetta er mat Lilju Mósesdóttur, formanns viðskiptanefndar Alþingis og þingmanns Vinstri grænna. Hún segir að líta megi á það sem borgun fyrir trygginguna. Lilja segir að með réttu ætti skattféð að renna í varasjóð hins opinbera sem yrði nýtt færi einhver bankanna á hliðina á meðan ríkisábyrgðin er í gildi. Innstæður í bönkunum nema nú í kringum 1.400 milljörðum króna, sem jafngildir einni landsframleiðslu. Á sama tíma skjóti skökku við að raunávöxtun er neikvæð. Lilja segir það benda til að fjármagnseigendur leiti ekki eftir vöxtum heldur því skjóli sem felist í ábyrgðinni. Ekkert hefur verið rætt um hugsanlegt álag á innstæður. Gjald upp á eitt prósent gæti skilað ríkissjóði fjórtán milljörðum króna í mesta lagi, að mati Lilju. Hún leggur áherslu á að innstæður hafi verið lægri fyrir hrun en aukist eftir það. „Þetta gjald hefði átt að setja á fyrir ári," segir hún. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, lagði fram frumvarp um ný lög um innstæðutryggingar á Alþingi í lok nóvember í fyrra. Það er nú í viðskiptanefnd en verður að líkindum lagt fyrir aðra umræðu á Alþingi eftir um hálfan mánuð. Líklegt er að það verði að lögum um miðjan júní. Frumvarpið felur í sér að búnir verða til tveir sjóðir. Núverandi Tryggingasjóður innstæðueigenda fer í B-hluta. Nýr tryggingasjóður verður til A-hluta og munu bankarnir greiða í hann 0,3 prósent af innstæðum fjórum sinnum á ári. Í framhaldinu verður innleidd fimmtíu þúsund evra trygging á innstæður. Það jafngildir rúmum 8,5 milljónum króna. Ríkisábyrgð á innstæður mun þrátt fyrir það ekki falla úr gildi á sama tíma. - jab
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Spá aukningu á verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukningu á verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Sjá meira