Neytendastofa bannar skilmála Avant á bílalánum 5. maí 2010 12:52 Avant lýsir sig reiðubúið að setja ofangreinda skýringu í vaxtaskrá félagsins sem sé aðgengileg viðskiptavinum þess á heimasíðu Avant.
Neytendastofa hefur úrskurðað í máli gegn Avant hf. þar sem fyrirtækinu er bannað að nota skilmála sína um ársvexti í bílasamningum sínum við neytendur.Í niðurstöðu Neytendastofu segir: „Avant hf., Suðurlandsbraut 12, Reykjavík, hefur brotið gegn ákvæðum laga, um neytendalán, með því að tilgreina ekki í skilmálum bílasamnings í íslenskum krónum með hvaða hætti vextir séu breytilegir og við hvaða aðstæður þeir breytist.Með heimild í lögum um neytendalán bannar Neytendastofa Avant hf. í bílasamningum við neytendur í íslenskum krónum að notast við skilmála um að ársvexti skuli greiða samkvæmt gildandi vaxtaskrá Avant hf. á hverjum tíma.Bannið tekur gildi við birtingu ákvörðunarinnar"Neytendastofu barst kvörtun vegna skilmála á bílasamningi við Avant hf. í apríl í fyrra. Í erindinu kemur fram að kvartandi hafi þann 20. júní 2007 keypt bifreið og fjármagnað kaupin með bílaláni frá Avant. Skuldabréfið sé í íslenskum krónum, tryggt með vísitölu neysluverðs og með breytilegum vöxtum. Um vextina segir í 2. gr. samningsins: „skuldari skuldbindur sig til að greiða tilgreinda ársvexti, sem skulu vera vextir samkv. gildandi vaxtaskrá AVANT hf., um bílalán, eins og hún er á hverjum tíma fyrir verðtryggð skuldabréf ..."Við eftirgrennslan greindi Avant frá því að breytilegir vextir fylgdu breytingum á stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands þó svo að í samningi væri ekki beint vísað til þess.Á skuldabréfinu séu upphafsvextir tilgreindir 7,25% en á þeim tíma voru stýrivextir Seðlabanka Íslands 13,3% og vaxtamunur því 6,05%.Þegar leið á árið 2008 hafi komið í ljós að ekki var samhljómur á milli breytinga á stýrivöxtum Seðlabanka og Avant. Þegar athygli starfsmanna Avant hafi verið vakin á því að breytingar á vöxtum samræmdust ekki breytingum á stýrivöxtum Seðlabanka hafi kvartanda verið bent á að hafa samband við lánasérfræðing sem gerði grein fyrir því að markaðsdeild væri með vitneskju um þetta og að haft yrði samband við kvartanda. Í byrjun september 2008 hafi kvartandi náð sambandi við markaðsstjóra sem lofaði að senda skýringar á vaxtabreytingunum. Enn hafi ekkert svar borist við því.Í bréfi Avant til Neytendastofu segir að breytilegir vextir skv. vaxtaskrá Avant stjórnist annars vegar af markaðsaðstæðum á fjármálamörkuðum, sem ráðist annars vegar af millibankavöxtum og hins vegar af þeim vaxtakjörum sem Avant njóti hjá fjármögnunaraðilum sínum og kalla megi grunnvexti, og hins vegar af samkeppnisumhverfi félagsins á bílalánamarkaði hérlendis, sem stýri því hvert álag Avant ofan á grunnvexti sé hverju sinni.Þar sem framangreind atriði séu í eðli sínu afar breytileg telji Avant sig ekki geta gefið nákvæmari lýsingu á vaxtabreytingaaðstæðum breytilegra vaxta en félagið lýsi sig reiðubúið að setja ofangreinda skýringu í vaxtaskrá félagsins sem sé aðgengileg viðskiptavinum þess á heimasíðu Avant.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira