Efnahagsbatanum seinkar að mati Seðlabankans 5. maí 2010 11:24 Samdráttur síðasta árs var minni en áður hafði verið reiknað með og vísbendingar eru um að einkaneysla verði sterkari út spátímann.
Seðlabankinn gerir ráð fyrir að efnahagsbata landsins seinki um einn ársfjórðung, til þriðja ársfjórðungs þessa árs. Samkvæmt því mun efnahagssamdrátturinn hér á landi vara í tíu ársfjórðunga eða tvö og hálft ár sem er lengra en í öðrum iðnríkjum.Þetta kemur fram í þjóðhagsspá í Peningamálum Seðlabankans sem birt voru í dag. Þar segir að þótt efnahagsbata seinki frá því sem spáð var í janúar, veldur kröftugri einkaneysla því að landsframleiðsla dregst minna saman á þessu ári en þá var spáð. Jafnframt eru horfur á hægum vexti á næstu tveimur árum.Samdráttur síðasta árs var minni en áður hafði verið reiknað með og vísbendingar eru um að einkaneysla verði sterkari út spátímann. Fjárfesting verður hins vegar veikari á þessu ári vegna frekari seinkunar stóriðjufjárfestingar og meiri samdráttar annarrar atvinnuvegafjárfestingar.Sveigjanleiki á vinnumarkaði hefur verið töluvert meiri en áður hafði verið gert ráð fyrir. Þannig dróst atvinna meira saman á síðasta ári og launakostnaður jókst mun minna en reiknað var með í janúar. Sveigjanleikinn hefur líklega átt ríkan þátt í að vega á móti meiri verðbólguþrýstingi sakir gengislækkunar og komið í veg fyrir að atvinnuleysi ykist meira en raun ber vitni. Útlit er fyrir að gengi krónunnar verði heldur sterkara á spátímanum en spáð var í janúar.Tiltölulega stöðugt gengi og vannýtt framleiðslugeta munu stuðla að áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. Spáð er að undirliggjandi verðbólga verði í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans snemma á næsta ári en að mæld verðbólga verði í samræmi við markmiðið þegar líða tekur á næsta ár.Sem endranær ríkir mikil óvissa um efnahagshorfur. Þó hefur dregið úr óvissu um framgang efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með samþykki annarrar endurskoðunar áætlunarinnar.
Mest lesið Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira