Leita tækifæra í ógn Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. maí 2010 04:00 Ný skýrsla
Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í apríl. Fækkunin nemur 17 prósentum þegar mánuðurinn er borinn saman við apríl í fyrra. „Gosið í Eyjafjallajökli hefur haft sín áhrif, en framan af mánuði, eða á tímabilinu 1. til 13. apríl, var 13,5 prósenta fjölgun í brottförum en á tímabilinu 14. til 31. apríl nam fækkunin 40,7 prósentum. Að viðbættum 1.000 brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll nemur fækkunin 34,3 prósentum,“ segir í samantekt Ferðamálastofu. Ferðamálastofa gekkst í gær fyrir ferðamálaþingi í Reykjavík í samstarfi við iðnaðarráðuneytið. Dagskráin var helguð gosinu í Eyjafjallajökli. Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri kynnti meðal annars nýja skýrslu sem nefnist „Vá – Öryggi og orðspor: Eldgos á Suðurlandi“. Í henni er farið yfir hverja þá þætti sem snúa að jarðhræringum líkum þeim sem hér hafa dunið yfir. Meðal annars kemur fram að í öllum tilvikum þurfi að bæta upplýsingamiðlun til ferðamanna meðan á hamförum standi, ásamt upplýsingum um við hverju megi búast á viðkomandi svæðum og hvernig bregðast eigi við. Í skýrslunni er þó um leið áréttað að í sérhverri stöðu felist tækfæri. „Mikilvægt er að ferðamenn sem koma til landsins séu meðvitaðir um það frábæra starf sem unnið er hér á landi á sviði almannavarna,“ segir þar og áréttað að mikilvægt sé fyrir ferðaþjónustuna að nýta sér tækifæri sem skapist þegar um „túristagos“ sé að ræða. „Tækifærin liggja í örygginu, fagmennskunni og upplýsingamiðluninni. Þannig á ferðamaðurinn að hafa öryggistilfinningu í landi óvæntra viðburða.“ Fyrir síðustu hræringarnar í Eyjafjallajökli einkenndi ferðaþjónustuna mikil bjartsýni og búist við töluverðri fjölgun ferðamanna. Nú hefur staðan snúist við og víða brugðist við afbókunum. Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), kveðst þó enn hóflega bjartsýnn, sér í lagi í ljósi þess markaðsátaks sem með stuðningi stjórnvalda sé verið að fara í gang með. „Að því gefnu að þar takist vel til og að náttúran spili með okkur, þannig að ekki verði frekari hamfarir og samgöngur riðlist ekki, þá er ég ekki svo rosalega svartsýnn,“ segir hann og kveður vel ganga að safna fé í markaðsátak fyrir ferðaþjónustuna. „Ríkið hefur lagt fram fé og borgin, sem og aðilar í ferðaþjónustunni innan SAF. Þar má nefna Icelandair, Iceland Express og fleiri fyrirtæki sem leggja inn peninga. Við ætlum að vinna úr þessari ógn tækifæri. Það er ekki um annað að ræða í stöðunni en að líta á það þannig.“ Árni segir að víða í ferðaþjónustunni hafi verið gripið til aðgerða til þess að draga úr afbókunum, svo sem með því að lengja frest til staðfestinga pantana og annað slíkt. „En við sjáum fyrst og fremst fram á að töluvert hafi hægt á nýjum bókunum. Og þær ætlum við að trekkja í gang með þessu átaki núna.“
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira