FA fagnar dóminum um ólögmæti iðnaðarmálagjalds 5. maí 2010 16:36
Félag atvinnurekenda (FA) fagnar dómi Mannréttindadómstóls Evrópu sem féll í sl. viku þess efnis að innheimta svokallaðs iðnaðarmálagjalds stæðist ekki ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. Dómurinn dæmdi íslenska ríkið til að greiða 26 þúsund evrur í málskostnað til Varðar Ólafssonar sem höfðaði málið. Þetta kemur fram á vefsíðu FA. Þar segir að dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu „að íslensk stjórnvöld hefðu ekki getað réttlætt þá íhlutun í félagafrelsi Varðar, sem fælist í gjaldinu og ekki tryggt jafnvægis milli réttar hans til að neita aðild að félagi og þeirra hagsmuna sem fælust í því að þróa og efna iðnað í landinu." Félagafrelsi er einn af hornsteinum stjórnarskrár Íslands og ofangreinds Mannréttindasáttmála, en í því felst m.a. rétturinn til að standa utan félaga. Í félagafrelsi felst ennfremur að aðilar skuli almennt greiða í félög af fúsum og frjálsum vilja til þess að afla hagsmunum eða áhuga sínum brautargengi. Á þessi gildi vill Félag atvinnurekenda leggja áherslu. Augljóst er að innheimta iðnaðarmálagjalds getur skapað ósanngjarna stöðu gagnvart greiðendum þess. Sem dæmi má nefna að innflutningsfyrirtæki með verkstæðisþjónustu hafa verið rukkuð um iðnaðarmálagjald vegna verkstæðisþjónustu sinnar. Er þetta gert þrátt fyrir að viðkomandi fyrirtæki séu aðilar að Félagi atvinnurekenda og vilji standa vörð um hagsmuni sína í gegnum félagið. Það skal tekið fram að skoðun Félags atvinnurekenda lýsir á engan hátt afstöðu til þeirrar hagsmunabaráttu sem rekin hefur verið af Samtökum iðnaðarins. Kjarni málsins er einfaldlega að hagsmunafélög eiga að fjármagna sig sjálf í gegnum gjaldtöku gagnvart félagsmönnum. Í því felst m.a. að félagsmenn eiga að geta gengið úr viðkomandi samtökum, kjósi þeir svo, og þar með falli gjaldtaka niður.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira