Fyrirtækið Snjöll nýting innlends hráefnis í áliðnaði 5. maí 2010 04:00 Frá Grundartanga. Kísilryk (SiO2) er selt sem íblöndunarefni í sement. Framleiðsla er yfir 20 þúsund tonn á ári. Lengi var það urðað í malarnámum. fréttablaðið/vilhelm
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur sýnt fram á að það er bæði tæknilega mögulegt og fjárhagslega hagkvæmt að nýta kísilryk sem fellur til við framleiðslu járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga til að framleiða háhitaeinangrun. Notagildið er mikið og er einangrunin til dæmis nýtt í kerfóðringar og hafa íslensk álver sýnt vinnunni áhuga. Stofnað hefur verið sprotafyrirtækið Háhiti um framleiðslu þessarar háhitaeinangrunar og stefnt er að því að setja upp verksmiðju á Akranesi innan skamms. Slík verksmiðja gæti skapað tíu til tólf störf í upphafi. Guðbjörg Óskarsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð, segir að hugmyndin hafi vaknað haustið 2008, eða í miðju hruninu. Þá hafi verið í anda tímans að dusta rykið af gömlum hugmyndum. Ein slík var að nýta þetta innlenda hráefni sem fellur til í töluverðu magni við framleiðslu járnblendis hjá Elkem á Grundartanga. Guðbjörg útskýrir að einangrunin sem um ræðir sé ekki aðeins mjög hitaþolin heldur sé hún sterkari en sú sem til þessa hefur verið nýtt í álverum hér. „Margvísleg notkun kemur til greina og sérstaklega í samhengi við nálægð framleiðslunnar við háhitanotkun bæði í iðnaði og orkuframleiðslu hérlendis. Tækifærin eru fjölmörg,“ segir Guðbjörg. - shá
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Nói Síríus hlýtur sjálfbærniverðlaunin 2026 Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira