Verðbólgumarkmið Seðlabankans ekki náðst síðan 2004 25. nóvember 2010 10:08
Ársverðbólgan hefur ekki náð verðbólgumarkmiði Seðlabankans upp á 2,5% síðan í apríl 2004. Verðbólgan mælist nú 2,6% eins og Hagstofan greindi frá í morgun. Mælingin í morgun er töluvert undir væntingum greiningardeilda sem yfirleitt höfðu gert ráð fyrir verðbólgu upp á 3% til 3,1% eða að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,4% til 0,5%. Hækkunin reyndist 0,05%. Ingólfur Bender forstöðumaður greiningar Íslandsbanka segir að munurinn á spám og niðurstöðu liggi einkum í að hækkun á rafmagnskostnaði hafi ekki skilað sér inn í mælinguna eins og búist hafði verið við. Þá hafi ekki verið gert ráð fyrri þeirri miklu lækkun á flugfargjöldum til útlanda sem mældist, en þau lækkuðu um 19% milli mánaða. Mikið flökt hefur verið í þeirri mælingu og nær vonlaust að spá fyrir um liðinn með vissu. Einnig eru ýmsir innfluttir liðir að lækka meira en útlit var fyrir. Ingólfur segir að hvað sem því líði er ljóst að góður árangur hafi náðst í að minnka verðbólguna á undanförnum mánuðum. „Það er áfram lítil sem engin verðbólga í pípunum og við reiknum með að verðbólgan fari undir markmið Seðlabankans um áramót eða snemma á næsta ári," segir Ingólfur. „Það er flest sem bendir til þess. Lítil innflutt verðbólga er framundan þar sem m.a. gengi krónunnar hefur verið að styrkjast á undanförnum mánuðum, launahækkanir hafa verið hóflegar og verð á íbúðahúsnæði hefur verið stöðugt." Ingólfur segir að það sem geti valdið hækkun vísitölunnar um áramótin eru einkum skattahækkanir og hækkanir á opinberum gjöldum. Hrávöruverðshækkun erlendis gæti einnig haft einhver áhrif. Verðbólgan ætti samt að vera um eða undir markmiði Seðlabankans megnið af næsta ári.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira