Viðskipti innlent

Innflytjendur óttast um hag sinn

Almar Guðmundsson
Almar Guðmundsson

Félag atvinnurekenda geldur varhug við frumvarpi fjármálaráðherra um að heimilt verði að bjóða út innkaup í útlöndum. Í greinargerð þess er vísað til áhuga heilbrigðisráðuneytisins og Landspítala á að kanna möguleika á sameiginlegum lyfjaútboðum með hinum Norðurlöndunum.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að með frumvarpinu sé opnað fyrir mjög almenna heimild til að útfæra opinber innkaup í samvinnu við erlendar innkaupastofnanir. Það þýði að þau færist úr landi.

„Þetta veldur okkur áhyggjum. Það eru til fyrirtæki sem hafa um helming tekna sinna af viðskiptum við ríkið og svona opin heimild getur haft mikil neikvæð áhrif á þau, sem gæti leitt til fækkunar starfa,“ segir Almar.

Frumvarpið geri ráð fyrir að um viðskiptin gildi lög viðkomandi ríkis. Íslenskri löggjöf sé því vikið til hliðar. Þá hafi fáir íslenskir aðilar tök á að taka þátt í sameiginlegum útboðum ríkja og margir dæmist því úr leik.

Markmið frumvarpsins virðist fyrst og fremst vera að lækka lyfjakostnað. Í kostnaðarmati fjármálaráðuneytisins segir að hvert prósent í lækkuðu innkaupsverði ségreindra heilbrigðisvara nemi 100 milljóna útgjaldalækkun.

Almar kveðst vitaskuld bera virðingu fyrir því markmiði en hugsa þurfi málið til enda. Þó sparast kunni við sjálf innkaupin geti aukinn kostnaður, til dæmis, vegna byrgðahalds og flutninga lagst ofan á. Ekki sé vikið að heildaráhrifum í kostnaðarmatinu.- bþs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×