Viðskipti innlent

Stefnt er að skráningu á ný

Sjoerd Vollebregt forstjóri Stork er ánægður með sölu á eignum fyrirtækisins.
Sjoerd Vollebregt forstjóri Stork er ánægður með sölu á eignum fyrirtækisins. AFP

Breski fjárfestingarsjóðurinn 3i greindi frá því í gær að hann hafi keypt hollenska iðnfyrirtækið Stork Material Technologies fyrir 150 milljónir evra, jafnvirði 23 milljarða króna. Fyrirtækið var hluti af hollensku iðnsamsteypunni Stork. Söluandvirði verður nýtt til niðurgreiðslu á skuldum, að sögn breska viðskiptablaðsins Financial Times.

Eyrir Invest, stærsti hluthafi Marels og einn af stærri hluthöfum Össurar, keypti Stork með Marel, Landsbankanum og breska fjárfestingarsjóðnum Candover síðla árs 2007 fyrir 400 milljónir evra. Marel keypti Stork Food Systems síðla árs 2007 og hafa aðrar deildir utan kjarnastarfsemi verið seldar síðan þá, svo sem sextíu prósenta hlutur í Stork Print, sem framleiðir vélar til litunar á fatnaði.

Stork hefur nú verið skipt upp í tvær einingar, Fokker, sem framleiðir þyrlur, herþotur og flugvélaíhluti, og Stork Technical Services, sem starfar í gas-, olíu- og orkuiðnaði. Eyrir á í dag sautján prósenta hlut í báðum félögum með Candover.

Iðnsamsteypan Stork var skráð á hlutabréfamarkað í Amsterdam þegar Eyrir og fleiri fjárfestar réðust í yfirtöku á fyrirtækinu fyrir þremur árum. Það var tekið af markaði í kjölfarið og er stefnan að skrá félögin á markað á ný í sitt hvoru lagi innan tveggja ára. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×