Viðskipti innlent

Már tjáir sig um Sjóvá og ásakanir Heiðars

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að þáttur Seðlabankans í söluferli Sjóvár muni standast fína skoðun. Hann hafnar því að hafa beitt valdníðslu og brotið reglur og lög. Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir fór fyrir hópi sem átti hæsta tilboðið í Sjóvá en hópurinn hefur nú dregið tilboð sitt til baka vegna tafa við vinnslu málsins hjá Seðlabankanum.

Heiðar Már sakaði Seðlabankann um valdníðslu í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær en hingað til hefur seðlabankastjóri neitað að tjá sig um málið.

Hann var hinsvegar spurður út í það á blaðamannafundi í dag og hafði þá þetta að segja:

„Ég get bara sagt eftirfarandi: Við erum háð þagnarskyldu. Samkvæmt 35. grein seðlabankalaga megum við ekki tjá okkur um einstök málefni viðskiptavina bankans og þeirra sem við eigum viðskipti við. Ég get hinsvegar fullvissað þig um það að allt þetta muni standast fína skoðun."

Már fullyrti að engin lögbrot hafi verið framin og að engri valdníðslu hafi beitt. Hann sagði ennfremur að á öllum stigum málsins hafi lögfræðingar verið til ráðgjafar. „Meira get ég ekki sagt, ég má ekki segja meira."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×