Viðskipti innlent

Verður á lygnum sjó árið 2015

Orkuveita Reykjavíkur fjármagnar sig með reglubundnum skuldabréfaútboðum
Orkuveita Reykjavíkur fjármagnar sig með reglubundnum skuldabréfaútboðum

Orkuveitan (OR) vinnur að undir­búningi skuldabréfaútboðs og stefnir á að selja lífeyrissjóðum bréf til 24 ára fyrir fimm milljarða króna. Þetta er framhald af útboði í árslok 2009 þegar OR sótti sér jafn háa upphæð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari skuldabréfaútgáfur á innlendum markaði hjá OR. Rætt er um að auka hlut innlendra lána í lánasafni OR með því að gefa út skuldabréf með reglubundnum hætti í framtíðinni fyrir tiltölulega lágar upphæðir, hálfan til einn milljarð króna í hvert sinn.

Helgi Þór Ingason, forstjóri OR, segir umfangsmikla uppstokkun á rekstri fyrirtækisins hafa tekist vel, sjóðsstreymi hafi verið tryggt með gjaldskrárhækkun og vísitölubindingu hennar auk niðurskurðar og áherslum í rekstri breytt. Þá muni um að eigendur OR hafi fallið frá arðgreiðslum. Eftir snarpa uppgreiðslu lána næstu fimm árin verði endurfjármögnunarþörf engin að því gefnu að ekki verði farið út í frekari fjárfestingar. „Við höfum orðið mjög sterka stöðu til að greiða niður skuldir," segir Helgi.

Heildarskuldir OR námu tæpum 236,6 milljörðum króna í lok síðasta árs. Þar af voru skammtímaskuldir 23 milljarðar króna og hefjast viðræður fljótlega um hundrað miljóna evra láni sem er á gjalddaga árið 2013. Afgangurinn eru lán í takt við endingartíma framkvæmda OR, eða til aldarfjórðungs í viðbót.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×