Væntingavísitalan yfir 50 stig í fyrsta sinn frá hruni 27. apríl 2010 11:51 Hin aukna bjartsýni á að stórum hluta rætur sínar að rekja til þess að væntingar neytenda til aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði glæðast verulega frá fyrri mánuði, eða um fjórðung.
Væntingar neytenda hafa heldur betur glæðst ef marka má væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var nú í morgun. Vísitalan hækkar um ríflega fjórðung frá fyrri mánuði og stendur nú í 54,7 stigum.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þetta er í fyrsta sinn frá bankahruni sem vísitalan mælist yfir 50 stigum. Vístalan mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir.Hin aukna bjartsýni á að stórum hluta rætur sínar að rekja til þess að væntingar neytenda til aðstæðna í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði glæðast verulega frá fyrri mánuði, eða um fjórðung. Bjartsýnin til næstu 6 mánaða hefur ekki verið meiri síðan í maí 2008. Vonandi er meiri innistæða fyrir bjartsýninni nú heldur en þá, en eins og kom á daginn var bjartsýnin þá lítið annað en falskar vonir enda var bankakerfið hrunið hálfu ári síðar.Væntingavísitalan byggir á svörum úr skoðanakönnun sem fer fram lungann af apríl mánuði en margt hefur gerst á því tímabili sem gefur aukna ástæðu til bjartsýni nú. Önnur endurskoðun efnahagsáætlunar AGS og stjórnvalda er loksins um garð gengin og þá er ekki loku fyrir það skotið að birting skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis eigi einhvern þátt í aukinni bjartsýni landsmanna nú, enda mörgum létt að skýrslan hafi nú loksins litið dagsins ljós.Væntingar neytenda um horfur í efnahags-og atvinnumálum hafa nú glæðst um tæplega 16 stig frá sama tíma í fyrra á þennan mælikvarða. Væntingar neytenda eiga þó enn langt í land að teljast góðar, en þegar bjartsýnin var sem mest mældist vísitalan 155 stig í maí 2007. Væntingar landsmanna fóru svo minnkandi árið 2008 og hefur vísitalan verið undir 100 stigum síðan í mars það ár.Athyglisvert verður að sjá hvernig væntingar landsmanna þróast í næsta mánuði og hvort lamandi áhrif eldgosins í Eyjafjallajökli á flugsamgöngur dragi eitthvað úr væntingum, en blikur eru nú á lofti þess efnis að gosið gæti skaðað ferðaþjónustuna í sumar.Þá er athyglisvert nú að bjartsýni er hvað mest meðal yngsta aldurshópsins eða þeirra sem eru 16-34 ára, en verði atvinnuástandið erfitt í vor og sumar fyrir skólafólk mun mat þessa aldurshóps á atvinnulífið líklega breytast til hins verra. Á móti kemur að útlit er fyrir minni verðbólgu í maímánuði og þá er útlit fyrir að Seðlabankinn geti haldið vaxtalækkunarferli sínu áfram núna í byrjun næsta mánaðar, en hvort tveggja er líklegt til að lyfta væntingum um horfur í efnahagslífinu.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Sjá meira