Meðallaun voru 334 þúsund á mánuði í fyrra 25. mars 2010 09:03
Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru 334 þúsund krónur að meðaltali á mánuði árið 2009. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar.Algengast var að regluleg laun væru á bilinu 175-225 þúsund krónur og var rúmlega fimmtungur launamanna með laun á því bili. Regluleg laun karla voru 360 þúsund krónur að meðaltali en regluleg laun kvenna 293 þúsund krónur.Sé aðeins horft til þeirra launamanna sem teljast fullvinnandi, voru regluleg laun þeirra að meðaltali 366 þúsund krónur á mánuði árið 2009 og var miðgildi þeirra 309 þúsund krónur. Regluleg heildarlaun voru 391 þúsund krónur að meðaltali og miðgildið var 344 þúsund krónur. Heildarlaun voru 423 þúsund krónur að meðaltali og miðgildi þeirra var 373 þúsund krónur. Greiddar stundir voru að meðaltali 43,1 á viku.Samhliða útgáfu launa á almennum vinnumarkaði er birtur í fyrsta skipti fjórðungastuðull launa og ná niðurstöður aftur til ársins 1998. Fjórðungastuðull ber saman laun þeirra launamanna sem falla innan efsta fjórðungs og þeirra sem falla innan lægsta fjórðungs og segir til um það bil sem er á milli hæstu og lægstu launa innan hverrar starfsstéttar eða atvinnugreinar.Þegar fjórðungastuðullinn er skoðaður kemur í ljós að launamenn í hæsta fjórðungi voru með 3,2 sinnum hærri regluleg laun en launamenn í lægsta fjórðungi árið 2009. Árið 2008 var samsvarandi tala 3,4. Fjórðungastuðull heildarlauna var 2,8 árið 2009 og hafði lækkað úr 3,3 árið áður. Þessar niðurstöður benda til þess að bilið á milli hæstu og lægstu launa á almennum vinnumarkaði hafi minnkað frá fyrra ári.Áhrifa af breyttri samsetningu vinnumarkaðarins má greina í niðurstöðum launa á almennum vinnumarkaði. Þannig dregst vægi byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar saman úr 14% í 8% frá fyrra ári. Samdráttur í efnahagslífinu endurspeglast einnig í breyttri samsetningu innan einstakra atvinnugreina.Þannig fækkaði verkafólki í fyrrgreindri atvinnugrein frá því að vera 49% af vegnum heildarfjölda í greininni árið 2008 niður í 37% árið 2009. Þá jókst vægi stjórnenda á sama tíma úr 3% í 6%.Þær niðurstöður sem hér er greint frá byggja á launarannsókn Hagstofu Íslands og ná til tæplega 30 þúsund launamanna á almennum vinnumarkaði.Frekari umfjöllun um niðurstöðurnar má finna í nýju hefti Hagtíðinda um laun á almennum vinnumarkaði 2009. Í heftinu má meðal annars finna ítarlega umfjöllun um laun, vinnutíma og launadreifingu eftir starfsstéttum, atvinnugreinum og kyni. Þá er einnig gerð grein fyrir samsetningu gagnasafnsins sem niðurstöðurnar byggja á.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Sjá meira