Greining spáir 2,4% verðbólgu í desember 14. desember 2010 11:04
Greiningardeild Arion banka spáir 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) í desember. Gangi spáin eftir mun tólf mánaða verðbólga fara lítillega undir verðbólgumarkmið Seðlabankans og mælast 2,4%. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Hvað helstu þætti í spánni varðar segir að í desember mun eldsneytisverð hafa um +0,2% áhrif til hækkunar vísitölu neysluverðs . Ástæða hækkunar má að hluta til rekja til hækkunar á heimsmarkaðsverði á hráolíu ásamt því sem dollar hefur styrkst. Hinsvegar hefur eldsneytisverð hækkað meira hér heima en verðþróun ytra gefur e.t.v. tilefni til - sem er vísbending um aukna álagningu olíufélaganna á árinu. Lækkun flugfargjalda gengur tilbaka. Flugfargjöld lækkuðu í nóvember og gerir greiningin ráð fyrir að sú lækkun gangi tilbaka í desember, líkt og verið hefur síðustu árin. Þá er gert ráð fyrir lítilsháttar hækkun húsnæðisliðar í spánni, eingöngu vegna þess að áhrif októbermælingarinnar hafa ennþá áhrif. Hinsvegar lækkaði verð á viðhaldi húsnæðis í nóvember og útilokar greiningin ekki frekari lækkanir í þessum mánuði. Eins og áður hefur verið bent á er húsnæðisliðurinn stór óvissuþáttur í verðbólguspá okkar enda sveiflukenndur liður og oft erfitt að meta áhrif húsnæðisliðar út frá mánaðarmælingu fasteignavísitölu FMR og Hagstofunnar þar sem sambandið þar á milli er frekar ófullkomið. Hvað aðra þætti varðar segir að viðhald vegna húsnæðis lækkaði í nóvember og hugsanlega gætu frekari lækkanir einnig komið fram í desember. Greiningin gerir ekki ráð fyrir að aðrir liðir breytist mikið í mánuðinum.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira