Ríkisstofnanir virða ekki lög um opinber innkaup 25. febrúar 2010 10:39
Misbrestur er á því að ríkisstofnanir fylgi ákvæðum laga um útboðsskyldu, verðsamanburð, gagnsæi og jafnræði í opinberum innkaupum. Í nýrri skýrslu bendir Ríkisendurskoðun á leiðir til úrbóta.Í tilkynningu um málið segir að skýrslan fjalli um athugun Ríkisendurskoðunar á viðskiptum stofnana við úrtak 800 birgja. Fram kemur að misbrestur er á því að stofnanir fylgi ákvæðum laga um að bjóða út innkaup þegar fjárhæðir fara yfir tiltekin mörk og um að bera saman verð þegar fjárhæðir eru undir þeim. Að þessu leyti hafa stofnanir ekki gætt þess að leyfa öllum sem hafa til þess hæfni og getu að keppa um viðskiptin, líkt og lög kveða á um.Athugunin náði til viðskipta að verðmæti 500 þúsunda kr. og þar yfir á tímabilinu janúar til október 2009. Ríkisendurskoðun gerir athugasemdir við viðskipti 45 stofnana og fjárlagaliða við 104 birgja, þ.e. 13% úrtaksins.Til að stuðla að því að ríkisstofnanir virði ákvæði laga um verðsamanburð við innkaup leggur Ríkisendurskoðun til að fjármálaráðuneytið komi á fót miðlægum auglýsingavef til að auka jafnræði og gagnsæi. Einnig mælist stofnunin til þess að mótaður verði gátlisti um verðkannanir þegar innkaup eru undir viðmiðunarfjárhæðum. Þá hvetur stofnunin Ríkiskaup til þess að fjölga tegundum rammasamninga en það eru samningar sem gerðir hafa verið við fjölmörg fyrirtæki og veita ríkisstofnunum sérkjör í viðskiptum við þau.Skýrslan er þriðja áfangaskýrsla Ríkisendurskoðunar sem birtir niðurstöður úttektar hennar á innkaupamálum ríkisins. Áður eru komnar út skýrslur um innkaupastefnu ráðuneytanna og verktakagreiðslur til nokkurra fastra starfsmanna Háskóla Íslands.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira