Rannsókn sérstaks sögð ónýt markleysa 8. október 2010 05:00 Sakborningarnir þrír mættu allir fyrir dóminn við þingfestingu ákærunnar. Þeir neituðu sök. Hér sjást Styrmir og Jón Þorsteinn ásamt verjendunum þremur.Fréttablaðið/anton
Sérstakur saksóknari hafði ekki heimild samkvæmt lögum til að rannsaka málefni Byrs og því ber að vísa svokölluðu Exeter-máli frá dómi. Þetta er samhljóða niðurstaða verjenda sakborninganna þriggja í málinu. Þessi röksemd kemur fram í greinargerðum verjendanna, sem Fréttablaðið hefur undir höndum. Þeir vísa í upprunaleg lög um sérstakan saksóknara sem tóku gildi haustið 2008. Þar segir að sérstakur saksóknari skuli „rannsaka grun um refsiverða háttsemi í aðdraganda, tengslum við og kjölfar atburða er leiddu til setningar [neyðarlaganna].“ Verjendurnir fullyrða allir að meint brot sem til rannsóknar eru í Exeter-málinu tengist á engan hátt atburðum sem leiddu til setningar neyðarlaganna, enda hafi Byr staðið vel á þessum tíma og ekkert hafi bent til þess að bankinn riðaði til falls. Málið snýst um rúmlega milljarðs lán sem Byr veitti til félagsins Exeter Holdings í árslok 2008 til kaupa á stofnfjárbréfum í Byr af MP banka og stjórnarmönnum sparisjóðsins. „Það ætti að vera óumdeilt að atvik sem lýst er í ákæru gerðust eftir setningu neyðarlaganna. Þau hafa enga vitræna tengingu við þau atvik sem urðu tilefni til setningar neyðarlaganna,“ segir Ólafur Eiríksson, verjandi Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Byrs. Settur ríkissaksóknari hefði því með réttu átt að ákveða hver skyldi fara með málið. „Ekki verður séð af gögnum málsins að ríkissaksóknari hafi tekið ákvörðun um að mál þetta ætti undir embætti sérstaks saksóknara og hefir hann að því er virðist að sjálfsdáðum ákveðið að málið ætti undir hann. Rannsókn hans er því ónýt og marklaus,“ segir Reynir Karlsson, verjandi Ragnars Z. Guðjónssonar, fyrrverandi sparisjóðsstjóra. „Með því að embættið hefur þrátt fyrir þetta annast alla rannsókn málsins frá upphafi, án þess að hafa til þess vald, er sú svokallaða rannsókn sem fram hefur farið markleysa – nullitet – og að engu hafandi,“ segir Ragnar H. Hall, verjandi Styrmis Þórs Bragasonar, fyrrverandi forstjóra MP banka. Lögum um embætti sérstaks saksóknara var breytt í sumar, eftir að rannsókn á Exeter-málinu var lokið, og orðalag þeirra gert almennara. Nú skal hann rannsaka grun um refsiverða háttsemi sem tengst hefur starfsemi fjármálafyrirtækja. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira