Viðskipti innlent

Velta kreditkorta jókst um 10,3% milli ára í nóvember

Heildarvelta kreditkorta í nóvember s.l. var 25,5 milljarðar kr. og er þetta 10,3% aukning miðað við nóvember 2009 en 2,4% aukning miðað við október s.l.

Þetta kemur fram í hagtölum seðlabankans. Þar segir að heildarvelta debetkorta í nóvember var 30,7 milljarðar kr. og er þetta 0,3% aukning miðað við nóvember 2009 en 4,3% aukning miðað við október s.l.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×