Stjórnvöld samþykkja „eðlileg“ vaxtakjör á Icesaveskuldinni 19. apríl 2010 00:01
Íslensk stjórnvöld heita því í nýrri viljayfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) að Bretum og Hollendingum verði að fullu endurgreiddur kostnaður vegna Icesave-reikninganna, auk „eðlilegra" vaxta. Stjórn AGS samþykkti endurskoðaða efnahagsáætlun Íslands fyrir helgi. Við það tilefni gáfu íslensk stjórnvöld út viljayfirlýsingu þar sem árangri áætlunarinnar hingað til er lýst, sem og höfuðmarkmiðunum á næstunni. Sérstakur liður er í viljayfirlýsingunni um Icesave. Þar er ítrekað að íslenska ríkið muni endurgreiða Bretlandi og Hollandi inneignir á Icesave-reikningum Landsbankans upp að lögbundnu hámarki. Þar segir einnig að íslenska ríkið hafi fullvissað viðsemjendur sína um að þeir muni fá eðlilega vexti fyrir útgjöldum þeirra vegna málsins, takist að ná samkomulagi sem sé ásættanlegt fyrir alla aðila. „Ísland er tilbúið til að ljúka við fyrsta tækifæri samningaviðræðum við ríkisstjórnir Bretlands og Hollands um lagalegar og fjárhagslegar skuldbindingar vegna þessa máls," segir í yfirlýsingunni. Eins og fram kom í Fréttablaðinu nýverið féllst stjórn AGS ekki á að taka efnahagsáætlun Íslands til endurskoðunar fyrr en þessum ákvæðum var bætt inn í viljayfirlýsinguna. Formlegar viðræður við bresk og hollensk stjórnvöld vegna Icesave hafa legið niðri að undanförnu. - bj
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sjá meira