Trygging innlána hefur leitt til verulegrar bjögunar 7. desember 2010 08:55
Alger trygging innlána á Íslandi hefur leitt til verulegrar bjögunar á fjármálamarkaði og dregið úr fjárfestingu þar sem fjárfestar hafa, fram til þessa, þegið háa áhættufría vexti á bankareikningum í stað þess að hætta fjármunum sínum í atvinnulífinu. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningar Arion banka þar sem fjallað er um tvö frumvörp sem litu ljós í nóvember en þau gera ráð fyrir nýjum álögum á íslenskar bankastofnanir samhliða því að hafa töluverð áhrif á fjármálamarkaðinn í heild sinni. Það fyrra fjallar um innstæðutryggingu og hið síðara um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki. Í Markaðspunktunum segir að alger trygging innlána hefur aldrei verið fest í lög á Íslandi en samt sem áður hafa þrjár ríkisstjórnir lýst henni yfir frá október 2008. Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að láta bankana greiða gjald fyrir fullþekju ríkisábyrgð þar sem hún getur ekki talist annað en niðurgreiðsla ríkisins. „Þessi ábyrgð er heldur ekki kostnaðarlaus fyrir efnahagslífið. Hún hefur leitt til verulegrar bjögunar á fjármálamarkaði og dregið úr fjárfestingu þar sem fjárfestar hafa ,fram til þessa, þegið háa áhættufría vexti á bankareikningum í stað þess að hætta fjármunum sínum í atvinnulífinu," segir í Markaðspunktunum. „Fullþekjan hefur heldur ekki reynst bönkunum sérstaklega holl þar sem hún hefur gert þeim erfitt fyrir að lengja í fjármögnuninni, en svo lengi sem stórir fjárfestar hafa kost á því að geyma fjármuni sína á óbundnum ríkistryggðum bankareikningum munu þeir vera lítt ginkeyptir fyrir skuldabréfum eða innstæðum með langan geymslutíma frá bönkunum. Eins og staðan er nú byggir vaxtamunur bankanna óþægilega mikið á tímamismun eigna og skulda, þar sem laus innlán standa undir nær allri fjármögnun á eignahlið. Það hlýtur að skapa áhættufælni, þ.e. tregðu að binda fjármagn í löngum útlánum enda skylda reglur Fjármálaeftirlitsins bankana til þess að geta á hverjum tíma mætt 20% af útflæði innlána." Greiningin telur að fjárfesting og útlán munu ekki taka við sér fyrr en fjárfestar hafa losnað úr faðmlögum við ríkið og bankarnir hafa lengt í fjármögnun sinni. Ofangreint frumvarp um ríkisábyrgð verður að telja fyrsta skrefið í þá átt þó það hreyfi í sjálfu sér ekki við yfirlýsingunni ríkisstjórnar um fulla ábyrgð. Hins vegar stendur afnám gjaldeyrishaftanna einnig fyrir dyrum og mjög erfitt er að gera það tvennt í einu að afnema ríkisábyrgð á innlánum um leið og opnuð er leið út úr landinu með afnámi hafta. Mjög líklega verða stjórnvöld að velja annað hvort kostinn, a.m.k. í fyrstu atrennu. Hið nýja innlánatryggingagjald mun aftur á móti bætast á langan lista af kostnaðaraukum hjá íslenskum innlánastofnunum, þar sem fyrir eru auknar eiginfjárkvaðir, í augnablikinu 16% en var áður 8%, lausafjárkvaðir það er verða að geta mætt 20% útflæði innlána, reglugerðarkvaðir og sitthvað annað fleira. Þá mun óumflýjanleg lenging fjármögnunar hækka fjármögnunarkostnað bankakerfisins þar sem binding innlána kostar auka vaxtapremíu og sama á við útgáfu skuldabréfa. Kostnaður við að bæta ofan á þennan lista hlýtur að leggjast á neytendur og þyngja enn þá bagga sem íslenskir lántakendur framtíðar þurfa að bera. Þjóðhagslegur kostnaður við slíka skattlagningu hlýtur að teljast nokkur með minni fjárfestingu og sparnaði. Þá er einnig nokkuð sérstakt að önnur fjármögnun bankastofnana, án ábyrgðar ríkisins, svo sem eins og útgáfa skuldabréfa skuli vera skattlögð. En ríkið ætti með öllum ráðum að reyna að hvetja fjármálastofnanir til þess að leita frá ríkisábyrgð og til slíkrar fjármögnunar. Ein skýring á þessari skattheimtu er að verið sé að útbúa millifærslukerfi þar sem allir lántakendur eru skattlagðir en skatttekjunum síðan endurdreift með vaxtabótum til tekjulágra og skuldugra heimila, að því er segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira