Viðskipti innlent

Þarf ekki að taka við stórri lóð

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna.

Hugur ehf. höfðaði málið gegn Reykjavíkurborg en fyrirtækið vildi skila 17 þúsund fermetra lóð sem það hafði fengið úthlutað undir atvinnuhúsnæði við Hádegismóa 5 í september árið 2007 og krafðist jafnframt tæplega 300 milljóna króna sem fyrirtækið greiddi fyrir byggingarrétt á lóðinni. Þá krafðist fyrirtækið viðurkenningar á skaðabótaskyldu borgarinnar fyrir mismunun með því að hafa brotið á fyrirtækinu rétt fyrir að neita að taka við lóðinni.

Í dómi Hæstaréttar segir að hvergi í skilmálum hafi verið kveðið á um heimild til að krefjast einhliða skila á lóðinni. Fyrirtækið hefði aðeins haft slíka heimild ef um vanefnd hefði verið að ræða hjá borginni sem skipt hefði máli fyrir hagsmuni fyrirtækisins en því hafi ekki verið til að dreifa.

Hæstiréttur telur að ekki hafi verið fyrir hendi brostnar forsendur til að krefjast riftunar og að málefnalegar forsendur hafi legið að baki þeirri ákvörðun borgarinnar um að hafna beiðnum um skil á lóðum undir atvinnuhúsnæði sem borist höfðu eftir 1. október 2008. Þá hafi borgin gætt jafnræðis því eins hafi verið farið með allar beiðnir um lóðarskil eftir þann tíma. Dómurinn er fordæmisgefandi og mun hugsanlega hafa áhrif á réttindi annarra lóðarhafa, til dæmis í Úlfarsárdal, sem reynt hafa að skila lóðum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×