SA: Ákvörðun um samruna Arion og BM Vallá jákvæð 13. október 2010 14:22
Virk samkeppni er mikilvæg við endurreisn atvinnulífsins og því er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna yfirtöku Arion banka á B.M. Vallá jákvæð, að mati Samtaka atvinnulífsins (SA). Þar eru sett fram skýr viðmið um hvernig yfirtöku banka á fyrirtækjum skuli háttað þannig að endurskipulagning þeirra geti tekist vel án þess að raska samkeppni eða fyrirtækjum sé alvarlega mismunað. Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að virk samkeppni er ætíð mikilvæg og ekkert síður þegar þjóðir kljást við efnahagsleg áföll. Aðgerðir stjórnvalda og markaðshegðun fyrirtækja, sem takmarka eða raska samkeppni, tefja endurreisn og draga efnahagslægðina á langinn. Umhverfi samkeppnismála og samkeppniseftirlits er hins vegar krefjandi á Íslandi vegna smæðar markaðarins og þörf á því að fyrirtæki nái lágmarksstærð til að njóta rekstrarhagkvæmni. Fákeppni er því óhjákvæmileg á mörgum sviðum en við slíkar aðstæður er skilvirkt samkeppniseftirlit mikilvægt sem getur fyrirbyggt ólögmæta samtryggingu á markaðnum og að markaðsráðandi fyrirtæki misnoti sterka stöðu sína. Með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hafa verið sett viðmið um hvernig yfirtöku banka á fyrirtækjum skuli háttað. Mál þessi eru flókin og vandmeðfarin en mikilvægt er að staðið sé málefnanlega að skuldameðferð og endurskipulagningu fyrirtækja, þar sem skýrum verklagsreglum er fylgt og byggt á faglegum vinnubrögðum.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira