Dollarinn ekki verið veikari gagnvart krónu í tvö ár 14. október 2010 12:22
Enn veikist Bandaríkjadollar gagnvart evrunni. Dollarinn kostar nú rétt rúmar 110 kr. og hefur ekki veruið veikari gagnvart krónunni síðan rétt eftir hrunið haustið 2008. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þegar þetta er ritað kostar evran 1,407 dollara sem er hæsta gildi sem evru/dollar krossinn hefur tekið síðan í janúar síðastliðnum. Bandaríkjadollar hefur nú verið í stöðugri veikingu síðan í byrjun september síðastliðins og hefur á þeim tíma veikst um tæp 10% gagnvart evrunni. Það sem veldur eru hagtölur sem bera það með sér að vöxtur bandaríska hagkerfisins er hægari en reiknað hafði verið með. Ekki hjálpar það dollarnum að á sama tíma og áhyggjur fara vaxandi af stöðu efnahagsmála vestanhafs segja evrópskar hagtölur þau tíðindi að hagkerfi Evrópu séu mörg hver að vaxa nokkuð hratt og bati þar virðist víða vera í sjónmáli. Veikur dollar hefur gert það að verkum að ódýrara er nú fyrir Íslending að fara til Bandaríkjanna en um langt skeið, en dollarinn kostar nú þegar þetta er ritað 110,07 kr. og hefur ekki verið jafn ódýr síðan rétt eftir hrun. Gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar hefur nú styrkst um 8% frá því í septemberbyrjun og um 15% frá júníbyrjun. Til upprifjunar kostaði dollarinn fyrir hrun 82 krónur en dýrastur var hann fyrir Íslendinga í árslok 2008 þegar reiða þurfti fram 147 kr. til að eignast einn dollara.
Mest lesið Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Heinemann sviptir hulunni af breytingum á fríhöfninni Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Sjá meira