Evran ekki verið ódýrari hérlendis í heilt ár 4. maí 2010 12:03
Þegar markaðir lokuðu í gær kostaði evran 169,99 kr. og hefur evran ekki kostað jafn fáar krónur í heilt ár. Þannig hefur evran kostað yfir 170 kr. á innlendum gjaldeyrismarkaði allt frá maíbyrjun í fyrra. Krónan hefur svo haldið áfram að styrkjast nú í morgun og kostar þegar þetta er ritað (11:45) 169 kr. á millibankamarkaði með gjaldeyri. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að ekki sé ólíklegt að hér sé um að ræða aukið gjaldeyrisinnflæði vegna afgangs af vöru og þjónustuviðskipum. Evran kostar nú tíu krónum minna en hún gerði í upphafi árs en allt frá áramótum talið hefur hún verið að styrkjast hægt og sígandi gagnvart evrunni. „Eins og kunnugt er fylgist peningastefnunefnd Seðlabankans náið með gengi krónunnar enda er gengisstöðuleiki eða styrking ein af forsendum þess að hægt sé að halda áfram að lækka vexti. Frá síðustu vaxtaákvörðun sem var þann 17. mars síðastliðinn hefur krónan styrkst um 1,5% gangvart evrunni en á heildina litið er gengi krónu gagnvart öðrum gjaldmiðlum á svipuðum slóðum og um miðjan mars. Verðbólga hefur einnig hjaðnað á tímabilinu og teljum við að búast megi við að peningastefnunefnd lækki vexti bankans um 0,75 prósentur á morgun," segir í Morgunkorninu. „Evran hefur einnig haldið áfram að veikjast gagnvart Bandaríkjadal í morgun og kostar þegar þetta er ritað 1.3095 dali. Eftir sem áður eru það áhyggjur af Grikklandi og vonbrigði með aðgerðapakka AGS og ESB sem veikja evruna nú. Þrátt fyrir að markaðsaðilar séu almennt sammála um það að staða Grikklands er nú mun betri en áður ríkir almenn vantrú á að grísk stjórnvöld hafi agann til að herða sultarólina til jafns við það sem AGS og ESB vilja og gera að skilyrði fyrir aðstoð."
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira