Dótturfélag Nýherja semur við danskar ríkisjárnbrautir 6. apríl 2010 10:07
Dótturfélag Nýherja, Applicon A/S í Danmörku, hefur gert samning við ríkisjárnbrautirnar þar í landi (DSB) um umfangsmikla SAP ráðgjafarþjónustu er tengist áformum fyrirtækisins um samræmingu og hagræðingu í rekstri samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. Samningurinn tekur til uppsetningar á einstökum einingum SAP fjárhagskerfisins fyrir lagerhald, innkaup, viðhaldsþjónustu, framleiðslu, sölu og reikningagerð. DSB flytur um 168 milljónir farþega á ári og er með 80% af lestarsamgöngumarkaðinum í Danmörku. Um 9.200 manns starfa hjá félaginu. DSB hyggst breyta skipulagi þjónustueininga fyrirtækisins og aðlaga að framtíðarmarkmiðum félagsins og er Applicon A/S ætlað að taka þátt í þeirri vinnu. Byggt verður á þeim SAP grunnkerfum, sem þegar eru uppsett í fyrirtækinu. "Verkefnið er þýðingarmikið fyrir Applicon í heild sinni því Applicon starfsmenn frá bæði Danmörku og Íslandi munu koma að verkefninu. Við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn og það lítur út fyrir að markaðurinn sé að taka við sér eftir lægð undanfarin 2 ár," segir Per Falck Jensen framkvæmdastjóri hjá hjá Applicon A/S í Danmörku. Applicon er norrænt ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar. Applicon félög Nýherja eru starfrækt í Danmörku, Svíþjóð og á Íslandi og hjá þeim starfa um 170 manns.
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Sjá meira