Viðskipti innlent

Saksóknari rannsaki söluna á Sparisjóði Hafnarfjarðar

Bæjarráð lagði einnig til að bæjarstjórn hvetji Alþingi til að taka til skoðunar upphaf og tilurð laga er varða breytt starfsumhverfi sparisjóða og hverjir hafi hagnast á þeim breytingum
Bæjarráð lagði einnig til að bæjarstjórn hvetji Alþingi til að taka til skoðunar upphaf og tilurð laga er varða breytt starfsumhverfi sparisjóða og hverjir hafi hagnast á þeim breytingum
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar, miðvikudaginn 12. maí, var samþykkt að leggja til að bæjarstjórn Hafnarfjarðar óski eftir því við embætti sérstaks saksóknara að tekin verði til skoðunar og rannsóknar sala á eignarhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar, yfirtaka Byr á eigum SPH og meðferð eignahluta.

Í tilkynningu segir að þar með sé talin meðferð varasjóðs vegna lífeyrisskuldbindinga og annarra þeirra þátta sem tengjast sérstaklega hagsmunum Hafnarfjarðarbæjar, íbúum Hafnarfjarðar og fyrrum starfsmanna SPH. Rannsókn þessari verði hraðað sem nokkur kostur er.

Bæjarráð lagði einnig til að bæjarstjórn hvetji Alþingi til að taka til skoðunar upphaf og tilurð laga er varða breytt starfsumhverfi sparisjóða og hverjir hafi hagnast á þeim breytingum. Ásamt því að bæjarstjórn óski eftir upplýsingum um samskipti Eftirlaunasjóðs starfsmanna Hafnarfjarðar við Byr sparisjóð varðandi lífeyrisskuldbindingar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×