Skuldir sveitarfélaga takmarkist við 150% af tekjum 30. september 2010 11:10
Samráðsnefnd ríkis og sveitarfélaga leggur til í nýrri skýrslu að sveitarfélögum verði skylt að takmarka skuldir og skuldbindingar samstæðu við 150% af skilgreindum tekjum samstæðu. Einnig er lagt til að jafnvægi verði milli samanlagðra rekstrartekna og rekstrargjalda á hverju þriggja ára tímabili. Fjallað er um málið á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að verkefni samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál hefur einkum verið að rannsaka árangur gildandi fjármálareglna samkvæmt sveitarstjórnarlögum og gera tillögur til úrbóta, að leggja fram tillögur að hagstjórnarsamningi ríkis og sveitarfélaga og í þriðja lagi að taka saman gögn um fjárhag sveitarfélaga fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn við gerð þjóðhagsáætlunar til ársins 2013. Auk tillagnanna er í skýrslu nefndarinnar sett fram greining á fjármálum sveitarfélaga í þjóðhagslegu samhengi. Þá eru í viðauka settar fram tillögur um fjárhagsáætlanir og breytingar á þeim, um útgjöld og meðferð fjármuna og fasteigna, um tryggingar og ábyrgðir, um regluleg skil á upplýsingum, um eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, samstarfsráð og mat á fjárhagslegum áhrifum stjórnvaldsákvarðana og lagasetninga á rekstur sveitarfélaga. Í forsendum fyrir skuldareglum kemur fram að skilgreining á skuldum sé mjög víðtæk: Langtímaskuldir, fjármögnunarleigusamningar, rekstrarleigusamningar, lífeyrisskuldbindingar eða aðrar skuldbindingar og allar skammtímaskuldir. Ef sveitarfélag er í samstæðurekstri með öðrum sveitarfélögum þá skal telja til skulda ábyrgð sveitarfélagsins á skuldum samlagsfélagsins eftir eignarhluta þess.
Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira