Aðhefst ekki frekar vegna kaupa Ívars á Lýsi 26. mars 2010 20:13 Mynd/Stefán Karlsson
Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna kaupa fjárfestingarfélagsins Ívars ehf. á 84% hlutafé í Lýsi hf. Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að Ívar er í óbeinni eigu Fram ehf. „Samkvæmt samrunaskránni voru kaupsamningur og afsöl dagsett 29. desember 2008. Fullnægði tilkynningin skilyrðum samkeppnislaga og reglna nr. 684/2008 um tilkynningu samruna, en félögum sem ekki starfa á sömu mörkuðum er heimilt að skila styttri tilkynningu skv. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga vegna samruna. Samkeppniseftirlitið mun í sérstöku máli taka til rannsóknar hvort brotið hafi verið gegn 3. mgr. 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sbr. g lið 37. gr. laganna," segir í tilkynningunni. Þar segir að Fram esé fjárfestingarfélag sem á hluti í ýmsum félögum. „Helstu fjárfestingar félagsins eru 30% eignarhlutur í Þórsmörk ehf. sem á allt hlutafé Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins. Þá er 88% eignarhlutur í Ísfélagi Vestmannaeyja í eigu Fram. Samkvæmt heimasíðu Ísfélags Vestmannaeyja er félagið með töluverða aflahlutdeild í ýmsum fisktegundum, m.a. þorski, ýsu og ufsa. Samkvæmt upplýsingum sem nálgast má á vef Fiskistofu fékk Ísfélag Vestmannaeyja úthlutað 2,54% af heildaraflamarki í þorskígildistonnum fyrir fiskveiðiárið 2009-2010." Lýsi framleiðir ýmsar vörur samkvæmt samrunaskrá. Fram kemur í samrunaskrá að fyrir utan hið hefðbundna þorskalýsi sem selt sé í íslenskum dagvöruverslunum framleiði Lýsi umtalsvert magn fiskiolía til útflutnings. Jafnframt kemur fram í samrunaskránni að samrunaaðilar telja að samruninn muni hafa óveruleg áhrif á samkeppni enda keppi samrunaaðilar ekki á sama markaði auk þess sem viðskipti á milli þeirra eru óveruleg. „Með hliðsjón af öllu því sem að framan er rakið og atvikum öllum í máli þessu telur Samkeppniseftirlitið ekki sé ástæðu til að aðhafast frekar vegna samrunans."
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira