HB Grandi: Óvissa um fiskflutninga 16. apríl 2010 17:04 ,,
Við eigum ein sjö tonn af ferskum flökum á Keflavíkurflugvelli sem bíða þess að komast í flug en staðan er vægast sagt mjög óljós. Við erum í stöðugu sambandi við viðskiptavini okkar í Evrópu," segir Sólveig Arna Jóhannesdóttir, sölustjóri ferskfiskafurða hjá HB Granda. "Ef einhverjar glufur opnast þá munum við nýta þær, þ.e.a.s. ef kaupendurnir eru sáttir við þær lausnir sem í boði kunna að vera," segir Sólveig Arna en útflutningur á ferskum fiski með flugi er nú í uppnámi eftir að flugsamgöngur á milli Íslands og Vestur-Evrópu lömuðust í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli. Fjallað er um málið á vefsíðu HB Granda. Þar segir að eldsumbrotin, sem hófust að morgni sl. miðvikudags, hafa nú þegar haft mun víðtækari og alvarlegri afleiðingar í för með sér en nokkurn gat órað fyrir. Þótt eldgosið sé ekki talið mjög stórt í sniðum þá náði það að lama svo til allar flugsamgöngur í Vestur-Evrópu á innan við tveimur sólarhringum. Askan, sem kemur frá eldstöðinni, hefur borist með háloftavindum vestur yfir meginland Evrópu og af öryggisástæðum hefur þúsundum flugferða verið aflýst á svæðinu frá Norður-Noregi, suður til Þýskalands og Frakklands og allt austur til Póllands og Austurríkis. ,,Það er algjör óvissa um framhaldið. Við biðum í ofvæni í gærmorgun eftir fréttum af því hvort flugheimildir fengjust. Við áttum ferskan fisk sem átti að fara annars vegar með Bluebird og hins vegar Icelandair á markað í Evrópu. Bluebird fékk flugheimild sem síðan var afturkölluð og fiskurinn er því enn á Keflavíkurflugvelli," segir Sólveig Arna en að hennar sögn voru horfur á því nú fyrir hádegið að hugsanlega yrði opnað fyrir flug til Skotlands en það var þó óstaðfest þegar rætt var við hana. ,,Við höldum öllum möguleikum opnum. Meðal þess, sem rætt hefur verið um, er að fljúga með fiskinn til einhvers flugvallar sem kann að opnast og flytja hann þaðan með flutningabílum til kaupendanna. Fyrir því þarf að sjálfsögðu samþykki þeirra. Vandinn er sá að kaupandi, sem vildi gjarnan fá ferskan fisk í dag, hefur hugsanlega takmarkaðan áhuga á sambærilegri sendingu á morgun. Málið er í raun miklu flóknara en það því nú erum við komin að þeim tímapunkti að það þarf að taka ákvarðanir um það hvernig á að haga vinnslunni hér heima og fyrir hvaða markaði á að vinna fiskinn," segir Sólveig Arna Jóhannesdóttir.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira