Útsvarstekjur hækki um 16,6 prósent 8. janúar 2010 06:00 Suðurnesjamenn fóru nýlega í svokallaða Keflavíkurgöngu til að berjast fyrir nýjum stórframkvæmdum í atvinnumálum. Trúin á að þær verði að veruleika setur mark sitt á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins á þessu ári. Fréttablaðið/Stefán
Fjárhagsáætlun, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á þriðjudag, hefur það að forsendu að 2.700-2.900 ný störf skapist í sveitarfélaginu vegna ýmissa nýframkvæmda á þessu ári, svo sem álver og höfn í Helguvík, virkjanir og gagnaver á Keflavíkurflugvelli. Nýframkvæmdirnar auki útsvarstekjur sveitarfélagsins um 680 milljónir króna, eða um 16,6 prósent frá síðasta ári. Bæjarsjóður skili þannig 47,2 milljóna króna tekjuafgangi. Áætlunin gerir ráð fyrir því að launakostnaður bæjarins hækki um þrjú prósent en rekstrargjöld lækki um fimm prósent milli ára, úr 8,3 milljörðum króna í 7,7 milljarða á þessu ári. Íbúar Reykjanesbæjar eru rúmlega 14.000 talsins og fækkaði um 118 frá 2008 til 2009. Nú er gert ráð fyrir að þeim fjölgi í ár um 280 manns. „Þar sem tafir hafa orðið á mörgum stórum verkefnum, verða tekjur af þeim lægri á þessu ári, en vænta mátti. Engu síður skapa þau stórbætta fjárhagsstöðu bæjarins á þessu ári,“ segir í bókun meirihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórninni. Í bókun minnihlutans segir að áætlun meirihlutans byggi á væntingum um tekjur, sem alls ekki eru í hendi og á niðurskurði sem eigi sér vart hliðstæðu. „Fræðslusviðið sem heldur utan um leik- og grunnskólastarf þarf að skera niður um 355 milljónir á árinu og það er rúmlega tvöfaldur sá niðurskurður sem Reykvíkingum er ætlað að taka á sig,“ segir minnihlutinn. Niðurskurður á fræðslusviði sé 10,7 prósent að teknu tilliti til framreikninga, fjölskyldu- og félagssvið skeri niður um 14,5 prósent, íþrótta- og tómstundasvið um 14,4 prósent, menningarsvið um 14,7 prósent og umhverfis- og skipulagssvið um 22,8 prósent. „Við skulum vona að niðurstaða þessarar áætlunar gangi eftir en verum þess jafnframt viðbúin að það muni skeika um hundruð milljóna eða jafnvel milljarða,“ segir minnihlutinn. Árni Sigfússon bæjarstjóri svaraði með annarri bókun þar sem segir að þrátt fyrir vantrú Samfylkingar munu sjálfstæðismenn halda ótrauðir áfram að koma álversverkefninu í Helguvík fram og trúa þar af leiðandi á eðlilega tekjuaukningu sem af því hlýst. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira