Afgangur af vöruskiptum 5% af landsframleiðslu 8. janúar 2010 12:13
Reynist bráðabirgðatölurnar fyrir desember réttar nam afgangur af vöruskiptum u.þ.b. 5% af áætlaðri vergri landsframleiðslu (VLF) síðasta árs. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að til samanburðar má geta þess að í síðustu Peningamálum í nóvember síðastliðnum spáði Seðlabankinn því að afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði myndi nema 6,7% af VLF á nýliðnu ári. Afgangur af þjónustuviðskiptum við útlönd nam tæplega 31 milljarði kr. á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Með hliðsjón af því að síðasti fjórðungur ársins er jafnan slakur hvað þjónustujöfnuð varðar áætlum við að afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði gæti samanlagt hafa numið 105-110 milljörðum kr. á síðasta ári. Það samsvarar 6,5-7,0% af áætlaðri VLF ársins og virðist því sem spá Seðlabanka muni verða nærri lagi hvað þetta varðar Útlit er fyrir að afgangur af vöruskiptajöfnuði hafi numið u.þ.b. 73 milljörðum kr. á síðasta ári. Er það mikill viðsnúningur frá árinu 2008 þegar tæplega 7 milljarða kr. halli var á vöruskiptum við útlönd, en munurinn skýrist af stærstum hluta af þriðjungs magnsamdrætti innflutnings á milli ára. Bráðabirgðatölur sem Hagstofan birti í morgun benda til þess að afgangur af vöruskiptum hafi verið tæpir 7 milljarða kr. í desember síðastliðnum. Samkvæmt þeim voru fluttar út vörur fyrir 42 milljarðar kr. í mánuðinum en inn fyrir tæplega 35,1 milljarða kr. Útflutningurinn skrapp saman um ríflega 2 milljarða kr. á milli mánaða og hefur ekki verið minni að krónutölu síðan í júlí síðastliðnum. Hagstofan nefnir að þar hafi togast á aukning í verðmæti áls á milli mánaða og minna verðmæti sjávarafurða. Hækkandi álverð hefur aukið útflutningsverðmæti áls jafnt og þétt frá vordögum, og svipaða sögu má raunar segja af sjávarafurðum þótt í minna mæli sé. Innflutningur minnkaði hins vegar um 3 milljarða kr. á milli mánaða sakir minni innflutnings á eldsneyti og hrá- og rekstrarvörum.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira