Bræðurnir eru að missa tökin 8. janúar 2010 04:00 Lýður og Ágúst Guðmundssynir geta líklega eignast Bakkavör að einhverju leyti þegar þeir hafa greitt skuldir eftir nokkur ár.Fréttablaðið/GVA
Líklegt er að bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, kenndir við Bakkavör, missi hlut sinn í Existu á næstu dögum en nauðasamningar félagsins verða lagðir fram í næsta mánuði. Þeir kveða á um yfirtöku kröfuhafa á Existu og brottrekstri forstjóra félagsins. Líklegt er að Exista verði leyst upp í núverandi mynd auk þess sem eignarhlutur bræðranna í Bakkavör verði tekinn af þeim. Þeir muni eftir sem áður stýra félaginu með það fyrir augum að tryggja heimtur kröfuhafa. Slíkt þykir beggja hagur enda kann svo að fara að bræðurnir eignist hlut í Bakkavör á nýjan leik eftir nokkur ár að lokinni greiðslu skulda. Exista var stærsti hluthafi Kaupþings áður en bankinn fór í þrot og átti stóra hluti í norrænu fjármála- og tryggingafyrirtækjunum Sampo í Finnlandi og Storebrand í Noregi. Viðskiptablaðið segir í gær að semja þurfi við lánardrottna Bakkavarar áður en til endurskipulagningar Existu kemur en sömu kröfuhafar eru á bak við bæði félögin. Þá þurfa niðurstöður að liggja fyrir um gjaldmiðlaskiptasamninga Existu við skilanefndir Glitnis og Kaupþings. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Exista verði á meðal stærstu kröfuhafa í bú Kaupþings. - jab
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Ráðin markaðsstjóri Prís Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira