Greining: Verðbólgan tæp 10% næstu þrjá mánuði 8. janúar 2010 08:34
Greining Arion banka spáir því að ársverðbólgan muni nema tæpum 10% næstu þrjá mánuði. Gerir spáin ráð fyrir að vísitala neysluverðs muni hækka um 2,4% á tímabilinu. Í janúar gerir greiningin ráð fyrir að vísitalan hækki um 1,2% þrátt fyrir útsölur. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að Þótt janúarmánuður sé útsölumánuður mun verðlag engu að síður hækka ríflega í mánuðinum vegna hækkana á sköttum og opinberum gjöldum. Óvissan um verðþróunina í janúar er meiri en venjulega, t.d. vegna þess að erfitt er að sjá fyrir hve hratt vsk-hækkanir skila sér út í verðlag. Ennfremur liggur ekki fyrir að hve miklu leyti uppsöfnuð hækkunarþörf fær að fljóta út í verðlag nú þegar kaupmenn breyta verðum samhliða hækkun vsk-prósentu. „Þessa óvissuþætti skal hafa til hliðsjónar þegar spá okkar um 1,2% hækkun verðlags í janúar er vegin og metin. Ennfremur mun Greiningardeild birta uppfærða spá um miðjan mánuðinn þegar verðþróunin liggur fyrir með skýrari hætti," segir í Markaðspunktunum „Eitthvað mun eima eftir af áhrifum skatta- og gjaldskrárhækkana í febrúar og jafnvel mars einnig. Því mun verðbólga vera tiltölulega há a.m.k. næstu tvo mánuði. Samkvæmt verðbólguspá okkar hækkar verðlag um 2,4% næstu þrjá mánuði eða sem jafngildir tæplega 10% verðbólgu á ársgrundvelli. Nokkuð hægir hinsvegar á verðbólgunni horft til 6 mánaða ef gengi krónunnar helst áfram stöðugt. Vissulega þarf þó að hafa í huga aukna óvissu varðandi íslenska efnahagsþróun sem gæti raskað forsendum spárinnar, t.d. horft til 6 mánaða."
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira