Hægt að vinna 4.300 MW úr þekktum háhitasvæðum 8. janúar 2010 09:47
Orkustofnun hefur lagt mat á vinnslugetu þekktra háhitasvæða til raforkuframleiðslu. Samkvæmt hinu nýja mati Orkustofnunar eru líkur á að hægt sé að vinna um 4300 MW af rafafli úr þekktum háhitasvæðum á Íslandi í 50 ár. Það samsvarar um það bil 35 TWh á ári. Til samanburðar nam raforkuvinnsla frá jarðvarmavirkjunum árið 2008 um 4 TWh af raforku.Fjallað er um málið á vefsíðu Orkustofnunnar. Þar segir að stofnunin birtir jafnframt tölur þar sem annarsvegar er gert ráð fyrir lágmarksframleiðslugetu einstakra svæða og hámarksgetu hinsvegar. En tekið er fram að líklegast sé að sum svæði reynist aflmeiri en önnur aflminni. Meðalgildið er því talið komast næst heildarmati á vinnslugetu allra háhitasvæða.Mat á stærð háhitasvæða byggir á yfirgripsmiklum viðnámsmælingum og athugunum á yfirborðsummerkjum. Stærð háhitakerfanna er mörkuð af útlínum háviðnámskjarna á 800 metra dýpi þar sem hitastig hefur líklega náð yfir 230°C á einhverjum tíma. Mat á vinnslugetu er svo byggt á yfirfærslu flatarvinnslugetu með rúmmálsaðferð frá fjórum völdum háhitasvæðum yfir á öll svæðin. Þá fyrirvara verður að setja að ekki er unnt að meta með vissu vinnslugetu svæðanna nema með því að virkja þau og einnig að öll þekkt háhitasvæði eru tekin með í reikninginn þar á meðal svæði sem að öllum líkindum verða aldrei virkjuð vegna verndargildis þeirra.Höfundar skýrslunnar eru Jónas Ketilsson frá Orkustofnun, og Héðinn Björnsson, Sæunn Halldórsdóttir og Guðni Axelsson frá Íslenskum orkurannsóknum.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira