Tilboð opnuð í vél- og rafbúnað Búðarhálsvirkjunar 5. október 2010 11:16
Tilboð verða opnuð kl. 15:00 í dag í vél- og rafbúnað Búðarhálsvirkjunar, í húsakynnum Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Um er að ræða lokað útboð sem var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu eins og skylt er að gera um verk af þessu tagi.Í tilkynningu segir að fimm bjóðendur voru valdir hæfir í framhaldi af forvali. Opnun tilboða er öllum opin, en þar eru lesin upp þau tilboð sem berast í verkið auk kostnaðaráætlunar.Í verkinu felst hönnun, framleiðsla og uppsetning á öllum vél- og rafbúnaði virkjunarinnar. Um er að ræða tvær vélasamstæður, samtals 85MW, ásamt stoðkerfum og stjórnbúnaði.Áætlað er að verkið verði framkvæmt á árunum 2011-2013 og að aflvélar virkjunarinnar verði komnar í fullan rekstur fyrir árslok 2013.Í lok ágúst síðastliðnum voru tilboð opnuð í byggingarvinnu fyrir Búðarhálsvirkjun en verkinu er skipt í þrjá verkhluta, stíflu, göng og stöðvarhús. Tilboð frá sjö aðilum bárust í þessa verkhluta og er nú unnið að yfirferð þeirra. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við byggingarvinnu hefjist fyrir lok árs 2010.Umfang byggingarvinnu ásamt vinnu við vélar og rafbúnað er um 90% af heildarframkvæmdum við Búðarhálsvirkjun. Útboð á smíði og uppsetningu á stállokum og þrýstivatnspípum verður auglýst fyrir lok ársins ásamt útboði vegna eftirlits með framkvæmdum og útboði vegna reksturs mötuneyta og vinnubúða.Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi ársverka sem skapist á Íslandi vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar verði á milli 600 til 700 yfir allan framkvæmdatímann. Þegar flest verður á vinnustað verða þar um 300 manns.
Mest lesið Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Fleiri fréttir Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Sjá meira