Raungengi krónunnar heldur áfram að hækka 5. október 2010 11:21
Raungengi íslensku krónunnar hækkaði um 0,9% í september síðastliðnum á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Raungengið hefur hækkað samfellt milli mánaða, að júlí undanskildum, síðan í nóvember á síðasta ári og endurspeglar það hækkun nafngengis krónunnar á þeim tíma. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að gildi raungengisins á ofangreindan mælikvarða er nú komið í 77,3 stig sem er það hæsta sem það hefur verið síðan í mars á síðasta ári. Það sem af er ári nemur hækkunin 14,3%. Þrátt fyrir þessa miklu hækkun er raungengið enn lágt í sögulegu samhengi, eða ríflega fimmtungi undir langtímameðaltali sínu. Þetta kemur fram í tölum sem Seðlabanki Íslands birti í gær. Þessi þróun er í samræmi við hækkun á nafngengi krónunnar á sama tímabili en nafngengi krónunnar var 1,1% hærra í september en í ágúst. Á hinn bóginn stóð vísitala neysluverðs í stað á sama tíma og var verðbólgan hér á landi minni en hún var í okkar helstu nágrannalöndum í mánuðinum. Líklega mun raungengið hækka enn frekar þegar fram líða stundir og eru rökin fyrir því m.a. að það er enn langt undir langtímameðaltali sínu og að okkar mati nokkuð undir því raungengi sem tryggir jafnvægi á utanríkisviðskiptum þjóðarbúsins. Hversu mikil sú hækkun verður, að hve miklu leyti hækkunin mun eiga sér rót í hækkun á innlendu verðlagi og launum, og hversu langan tíma það tekur að ná því gengi sem tryggir umrætt jafnvægi er hins vegar ómögulegt að segja til um, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira