Viðskipti innlent

Heildaraflinn minnkaði um 19% milli ára í júní

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði, metinn á föstu verði, var 19,2% minni en í júní 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflinn nam alls 84.941 tonni í júní 2010 samanborið við 129.036 tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli dróst saman um rúm 5.300 tonn frá júní 2009 og nam 33.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 9.300 tonnum, sem er samdráttur um 3.000 tonn frá fyrra ári.

Ýsuaflinn nam tæpum 4.000 tonnum, sem er um 700 tonnum minni afli en í júní 2009. Um 4.000 tonn veiddust af ufsa, sem er um 2.000 tonnum minni afli en í júní 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 500 tonn og nam um 2.100 tonnum. Um 1.300 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann tæpum 12.700 tonnum. Mest aukning var þar í veiði á úthafskarfa og blálöngu.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 47.300 tonnum, sem er um 38.000 tonnum minni afli en í júní 2009. Af uppsjávartegundum veiddust rúm 25.000 tonn af síld og rúm 22.000 tonn af makríl.

Flatfiskaflinn var tæp 3.000 tonn í júní 2010 samanborið við 3.700 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn stóð nokkurn veginn í stað milli ára og nam 1.300 tonnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×