Viðskipti innlent

Viðskipti með hlutabréf minnkuðu nokkuð í apríl

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Saga Capital með mestu hlutdeildina 26,4% (53,6% á árinu), Landsbankinn með 21,3% (8,8% á árinu) og sömuleiðis Íslandsbanki með 21,3% (9,6% á árinu).
Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Saga Capital með mestu hlutdeildina 26,4% (53,6% á árinu), Landsbankinn með 21,3% (8,8% á árinu) og sömuleiðis Íslandsbanki með 21,3% (9,6% á árinu).

Heildarviðskipti með hlutabréf í aprílmánuði námu rúmum 1.285 milljónum kr. eða 71 milljónum kr. á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í mars tæpar 2.279 milljónir kr. , eða 99 milljónir kr. á dag. Mest voru viðskipti með bréf Marels (MARL) 750 milljónir kr. og með bréf Össurar (OSSR) 211 milljónir kr.

Þeta kemur fram í yfirliti frá Kauphöllinni um markaði hennar í apríl. Þar segir að úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 6,2% milli mánaða og stendur nú í 1003,9 stigum. Af atvinnugreinavísitölum hækkaði vísitala iðnaðar (IX20PI) mest eða 17,3%.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Saga Capital með mestu hlutdeildina 26,4% (53,6% á árinu), Landsbankinn með 21,3% (8,8% á árinu) og sömuleiðis Íslandsbanki með 21,3% (9,6% á árinu).

Heildarviðskipti með skuldabréf námu rúmum 183 milljörðum kr. í síðasta mánuði sem samsvarar 10,2 milljarða kr. veltu á dag. Í marsmánuði nam veltan 10,8 milljörðum kr. á dag. Mest voru viðskipti með lengri flokka ríkisbréfa, RIKB 19 0226 45,3 milljarðar kr. og þá RIKB 25 0612 með 35,8 milljarða kr. Alls námu viðskipti með ríkisbréf 125,8 milljörðum kr. en viðskipti með íbúðarbréf námu 48,5 milljörðum kr.

Ávöxtunarkrafa þriggja mánaða óverðtryggðu vísitölunnar (OMXI3MNI) lækkaði um 80 punkta í mánuðinum og stendur nú í 6,16%. Ávöxtunarkrafa eins ára óverðtryggðu vísitölunnar (OMXI1YNI) lækkaði um 30 punkta og er núna 5,79% og krafa fimm ára óverðtryggðu vísitölunnar (OMXI5YNI) lækkaði um 37 punkta og stendur í 6,46%.

Í aprílmánuði var MP Banki með mestu hlutdeildina 33,4% (33,2% á árinu), Íslandsbanki með 24,9% (23,6% á árinu) og Landsbankinn með 19,7% (19,1% á árinu).










Fleiri fréttir

Sjá meira


×