Óskað eftir handtökuskipun á Sigurð Einarsson Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 11. maí 2010 18:30
Óskað hefur verið eftir því að gefin verði út handtökuskipun á Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings. Hann hefur ekki enn sinnt kalli sérstaks saksóknara um að mæta í yfirheyrslu. Tveir háttsettir fyrrverandi yfirmenn Kaupþings hafa verið í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara í allan dag. Þeir voru handteknir við komuna til landsins í nótt. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim. Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður hafði verið boðaður til yfirheyrslu í lok þessarar viku en var beðinn um að flýta heimkomu sinni eftir að þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson voru handteknir á fimmtudag. Hann hefur ekki svarað því kalli. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur sérstakur saksóknari óskað eftir því að gefin verði út handtökuskipun á Sigurð sem búsettur er í Bretlandi. Íslendingar eru ekki aðilar að evrópsku handtökuskipuninni sem gerir ferlið flóknara en ella. Starfsmenn sérstaks saksóknara munu vera í daglegum samskiptum við lögregluyfirvöld í Bretlandi vegna málsins. Þeir Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, og Steingrímur Kárason, framkvæmdastjóri áhættustýringar bankans, sem hafa verið í yfirheyrslum í allan dag voru meðal æðstu stjórnenda Kaupþings og unnu náið með Hreiðari Má og Sigurði Einarssyni. Þeir voru báðir með yfir 600 milljónir króna í laun á tímabilinu 2004 til 2008. Þeir Ingólfur og Steingrímur eru báðir með skráð lögheimili í Lúxemborg og voru handteknir við komuna til landsins í nótt. Þeir voru yfirheyrðir snemma í morgun og í framhaldinu færðir í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Hingað til hefur það tíðkast að menn sem komið er með í yfirheyrslur fari inn um annan af tveimur aðalinngöngum húsnæðis séstaks saksóknara. Í dag var hins vegar annar háttur hafður á þegar þeim Ingólfi og Steingrími var ekið bak við húsið. Þeir voru færðir aftur til yfirheyrslu um klukkan hálftvö í dag og standa yfirheyrslur enn yfir. Björn Þorvaldsson, saksóknari, vildi ekki veita neinar upplýsingar um málið. Ekki fæst uppgefið hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim félögum.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira