Jólin

Pálmi Gunnars: Upp úr hádegi ilmar húsið

„Þetta árið verða fáir pakkar undir trénu þar sem við ákváðum að eyða engu í gjafir til hvors annars. Ánöfnum þess í stað upphæðinni sem hefði farið í jólagjafainnkaup til fólks sem hefur minna en við. Svo er það bara slökun og meiri slökun."

„Í aðdragand jólanna geng ég í skóg að ná í jólamatinn," segir Pálmi Gunnarsson spurður út í jólahefðirnar.

„Ég ólst upp við þennan bragðgóða fallega hænsnfugl sem hátiðarmat og hefðin er afar sterk á mínu heimili varðandi þenna hluta hátíðarmatseðilsins," segir hann.

„Það er einstök stemming sem fylgir rjúpnaveiðum. Árstíminn, birtan, snjórinn og einveran, allt helst það í hendur við góða tilfinningu sem fylgir því að ná í hátiðarmatinn."

„Lykt af eplum skapar ákveðna stemmingu. Án efa minni úr æsku en þá sáust epli aðeins einu sinni á ári."

„Að vera með liðinu mínu í margra daga veisluhöldum og afslöppun," svarar Pálmi spurður hvað kemur honum í hátíðarskap.

„Lykt af eplum skapar ákveðna stemmingu. Án efa minni úr æsku en þá sáust epli aðeins einu sinni á ári."

Eftirminnileg jól í þínum huga - sem þú gleymir ekki? „Ég var trakteraður með jólabarni árið 1991 en þá fæddist yngri dóttir mín. Það var alvöru jólapakki."

Pálmi og sonur hans, Siggi, syngja saman á plötunni Friðarjól.

Hvernig verður aðfangadagskvöldið hjá þér í ár? „Algerlega eftir bókinni. Upp úr hádegi ilmar húsið af veisluréttum, stelpurnar verða þá búnar að skreyta jólatréð sem er athöfn," svarar hann.

„Þetta árið verða fáir pakkar undir trénu þar sem við ákváðum að eyða engu í gjafir til hvors annars. Ánöfnum þess í stað upphæðinni sem hefði farið í jólagjafainnkaup til fólks sem hefur minna en við. Svo er það bara slökun og meiri slökun."

„Svo er það bara slökun og meiri slökun."

Gerir þú þér grein fyrir því hvað þú ert stór hluti af jólunum (jólalögin sem þú syngur) hjá mörgum Íslendingum? „Nei ég hugsa ekki mikið um það," svarar Pálmi og segir:

„Hinsvegar er ég minntur á það reglulega að ég hef sungið nokkur jólalög sem hafa fallið í góðan jarðveg og fyrir það er ég þakklátur."-elly@365.is

Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

×