Afar lítill áhugi erlendra aðila á ríkisbréfum í apríl 11. maí 2010 13:35
Svo virðist sem áhugi erlendra aðila á ríkisbréfum hafi verið afar lítill í apríl síðastliðnum. Samkvæmt Markaðsupplýsingum sem Lánamál sendu frá sér í gær keyptu erlendir aðilar ekkert í þeim ríkisbréfaflokkum sem í boði voru í apríl, þ.e. RIKB11 og nýja verðtryggða flokknum RIKS21 sem hleypt var af stokkunum í mánuðinum.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka en þar segir að þetta komi greiningunni nokkuð á óvart hvað RIKB11 varðar þar sem óðum styttist í að binditími flokksins fari undir þau eins árs mörk sem margir erlendir aðilar taka mið af, auk þess sem að þeir áttu um 73 milljarða kr. í ríkisbréfaflokknum sem var á gjalddaga í mars síðastliðnum.Í lok mars áttu erlendir aðilar rétt rúmlega helming allra bréfa í RIKB11 og er ljóst að hlutdeild þeirra í flokknum hefur minnkað nokkuð eftir útboð ríkisbréfa í apríl. Í lok apríl var heildarfjárhæð útistandandi bréfa í RIKB11 39,5 milljarðar kr. að nafnverði og eftir útboðið sem haldið var á flokknum síðastliðinn föstudag er hann orðinn rúmlega 50 milljarðar kr. að stærð.Eins og svo oft áður voru erlendir aðilar umsvifamiklir í aprílútboði ríkisvíxla. Keyptu þeir víxla fyrir 15,2 milljarða kr. að nafnverði í útboðinu, en alls voru þá seldir víxlar fyrir 20 milljarða kr. Í lok mars voru útistandandi ríkisvíxlar fyrir rúma 77,8 milljarða kr. og nam eignarhlutdeild erlendra aðila rúmum 67%.Á gjalddaga í apríl voru 21,4 milljarðar kr. af ríkisvíxlum en upphaflega höfðu erlendir aðilar keypt tæp 68% af seldum bréfum í þeim flokki. Má því ætla að eignarhlutdeild þeirra af útistandandi ríkisvíxlum hafi aukist nokkuð í mánuðinum og sé komin í ríflega 69%. Eftir útboðið í apríl minnkaði heildarstabbi útistandandi ríkisvíxla lítillega og nam 76,6 milljörðum kr. í lok mánaðarins.Í lok mars áttu erlendir aðilar um 192,5 milljarða kr. að nafnverði í ríkisbréfum og -víxlum sem samsvarar til 49% af útistandandi bréfum af þessari gerð. Eignarhlutdeild þeirra í víxlum var þá 67% en í ríkisbréfum rúm 44%.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira