OECD: Kreppan lengri og dýpri á Ísland 26. maí 2010 12:27
Af tölum OECD í nýrri skýrslu stofnunarinnar er nokkuð ljóst að kreppan hér á landi er bæði mun dýpri og lengri en í öðrum aðildarríkjum OECD. Þannig spáir stofnunin að hagvöxtur verði að meðaltali 2,7% innan aðildarríkjanna í ár og svo 2,8% á næsta ári.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að OECD spáir því að raunsamdráttur landsframleiðslu í ár verði 2,2% hér á landi samkvæmt hagspá stofnunarinnar sem birt var nú í morgun.Þetta er nokkuð minni samdráttur en aðrar stofnanir hafa verið að gera ráð fyrir í nýlegum spám. Þannig spáir t.a.m. Seðlabanki Íslands (SÍ) 2,6% samdrætti hér á landi á árinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) 3,0% samdrætti. Á næsta ári reiknar OECD með því að íslenska hagkerfið taki ágætlega við sér og spáir hagvexti upp á 2,3% sem er í takti við spá AGS en nokkru minni en 3,4% vöxtur sem SÍ reiknar með.Mjög mismunandi er hvernig horfir í efnahagsmálum innan aðildarríkjanna og ætti ekki að koma á óvart að OECD reiknar með að samdrátturinn verði mestur í Grikklandi. Þannig gerir OECD ráð fyrir 3,7% samdrætti í Grikklandi á árinu og svo 2,5% samdrætti til viðbótar á því næsta.Þess má geta að Grikkland er eina ríkið þar sem stofnunin spáir meiri samdrætti á árinu en á Íslandi, en á móti kemur að mun meiri samdráttur var hér á landi á síðasta ári en hjá Grikkjum, eða 6,5% á móti 2,0%. OECD reiknar einnig með að landsframleiðsla muni dragast saman á árinu á Írlandi og svo á Spáni, eða um 0,7% og 0,2%, en reiknar með hagvexti í öðrum aðildarríkjum.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira